Í formi 2010

Þá styttist í íþróttamótið Í formi á Höfn í Hornafirði. Það verður haldi helgina 17. - 18. september en þáttakendur þurfa að vera orðnir 30 ára!!

Já það er mikil stemming hér í bæ, fólk á hlaupum og æfingar á fullu. Ég var auðvitað með plön um að vera með og skella mér á einhverjar æfingar því að ég er eiginlega ekki í formi, allavega ekki í góðu formi!! En einhverra hluta vegna þá hef ég ekki enn mætt á neina æfingu, gæti nú svo sem tekið sprett án þjálfara (eða hvað!) en hef ekki gert það. Það er aldrei góður tími og tími er eitthvað sem að flýgur mjög hratt hjá þessa dagana. Eitt er þó nokkur víst ég mun allavega mæta og hvetja þá sem taka munu þátt.

Hins vegar má ég nú alls ekki gera lítið úr íþróttaiðkun minni því að sl. fjóra mánuði hef ég tekið þátt í þrem íþróttaviðburðum meira að segja í keppni sem er nú algjört met.  Keppnisferillinn hófst í boðsundskeppni lið frambjóðenda til sveitarstjórnar á sumardaginn fyrsta. Eftir að hafa flogið inní bæjarstjórn hef ég tekið þátt í vígslu tveggja íþróttavalla. Nýs gervigrasvallar og körfuboltavallar, það er gaman að segja frá því að bæjarstjórn og starfsmenn báru sigur úr bítum í báðum vígsluleikjunum og var það ekki leikþekkingu eða snilli minni að þakka. En þar gildir sannur ólympíu andi  - aðal málið að vera með :-)

En ég verð pottþétt Í formi 2011!!!

 


Nóg að gera!!

Það má með sanni segja að ekki er verkefnaskortur hjá mér þessa dagana. Enda ekki við því að búast þegar maður er að vasast í mörgum og fjölbreyttum málum.

Á HSSA er ég að undirbúa mánaðarmót, já þau hefjast 15. hvers mánaðar hjá mér!! Síðan er verið að raða niður vöktum fyrir haustið og púsla saman því sem uppá vantar þessa næstu daga. Sumarafleysingafólkið farið að týnast út og fasta starfsfólkið sem er í seinna sumarleyfishollinu ekki komið inn í vinnu ennþá. En þetta er allt að koma og jólaskýrslan nálgast óðum!!

Í dag var fundur hjá skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd. Til dæmis voru málefni grunnskólans  áberandi þar, farið var yfir drög að aðalnámskrá og svo var umræða um þær endurbætur sem þurfa að fara fram á húsnæði Heppuskóla. 

Miklar umræður sköpuðust um kostnað nemenda/foreldra í upphafi skólaárs. Nú er verið að gera könnun á því hver grunnkostnaður er á þeim innkaupalistum sem skólinn leggur fram. Eigum við að geta keypt stílabækur, blýanta o.s.frv í gegnum skólann eða úti í búð eins og verið hefur?? En við getum allavega sparað okkur góðan skilding með því að nota skólatöskuna eitt ár enn eða kannað hvort að hjá vinum eða ættingjum leynist taska í geymslunni sem gefa má nýtt líf!

Já, það er nóg að gera og um margt að hugsa :)


Heima er best.

Fjölskyldan gerði víðreist í sumarleyfinu. Eins og margir aðrir íslendingar þá ferðuðumst við innanlands og gistum á tjaldstæðum. Þau tjaldstæði sem okkur líkaði best á voru í Skógarnesi við Apavatn sem að Rafiðnaðarsambandið á og rekur og svo á Tálknafirði. Öll aðstaða er til fyrirmyndar á þessum svæðum og það sem stendur uppúr er gott leiksvæði fyrir börnin.

Einnig fórum við í ellefu sundlaugar á rúntinum. Enda elskum við að liggja í afslöppun í góðum vaðlaugum eða pottum. Allar voru þær metnar út frá OKKAR laug. Aðstaða, þjónusta, öryggi o.s.frv. Niðurstaðan er sú að sundlaugin OKKAR hér á Höfn í Hornafirði er alveg dásamleg. En laugin á Kirkjubæjarklaustri er líka mjög fín, alltaf gott að koma á Suðureyri þar sem er mjög kósý stemming. Einnig get ég vel hugsað mér að koma oftar við á Hellu.

Við heimkomuna tók við garðvinna og svo bæjarfulltrúa starfið.

Bæjarráðsfundur sl. þriðjudag. Þar var ráðin í tímabundna afleysingu tómstundafulltrúa Hólmfríður Þrúðmarsdóttir, hittum ein umsækjanda um stöðu yfirmanns umhverfis- og skipulagsmála.

Einnig var farið yfir stöðu framkvæmda við Lönguhóla og Sidrabæ. Þau verk eru á áætlun sem er gott því starfsemi hefst fljótlega í báðum húsum að loknu sumarleyfi skólanna.


Helgarfrí - Sumarfrí!

Þá er leikskóla unginn minn kominn í helgarfrí og sumarfríið hefst formlega eftir helgi. Sama má segja um öll önnur leikskólabörn á Hornafirði. Hér eru tveir frábærir leikskólar Lönguhólar og Krakkakot. Ár hvert er fjögura vikna lokun á báðum skólum síðan hefst haustið með vinnudegi og starfsdegi þannig að öll leikskólabörn byrja svo aftur á sama degi í ágúst.

Vonandi verða þau í fríi með foreldrum sínum a.m.k. öðru því stundum er erfitt að samræma sumafleyfi allra fjölskyldumeðlima. Leikskólafríið hefur verið svo lengi sem ég hef haft barn á leikskóla hér frá miðjum júlí og viku fram yfir verslunamannahelgi. Þetta er vinsæll sumarleyfistími og útivinnnandi foreldrar oft í samkeppni við samstarfsfólk um leyfið. 

Einnig er erfitt að fá afleysingafólk inn í vinnu fyrir þá sem taka frí á þessum tíma. En einhvern vegin  bjargast hlutirnir oft. Dregið er úr þjónustu á þessum tíma, deildum á spítölum, dvalardeildum og öðru lokað. Það eru ekki vinsælar ráðstafanir en svona er nú það!


Viku uppgjör!

Já það hefur verið nóg að gera sl. viku. Hápunktarnir tengjast listum og náttúru.

Á föstudaginn fyrir viku var ég viðstödd opnun á sýningu á verkum Svavars Guðnasonar,  Rökræður hugans í Nýheimum hér á Höfn. Við það tækifæri var formleg afhending á gjöf  úr dánarbúi Ástu Eiríksdóttur ekkju Svavars. Gjöfin samanstendur af fjölda verka hans olíumálverk, vatnslitamyndir, teikningar og ýmislegt fleira. Það sem mér þykir líka setja mjög persónulegan og skemmtilegan svip á sýninguna eru húsgögn úr búi þeirra hjóna, vinnuborðið hans og persónulegir munir svo sem litakassi, hattur o.fl. Sýningin er opin í Menningarmiðstöinni, Nýheimum út ágúst mánuð. 

Humarhátið hófst eiginlega sl. miðvikudag en hápunkturinn var um helgina í mikilli vætu svo vægt sé til orða tekið. Á föstudagskvöldið fórum við hjónin á rölt og skoðuðum listsýningar og hlustuðum á tónlist á hátíðarsvæðinu. Á laugardag fór ég á frábæra tónleika með Ellu mágkonu í Hafnarkirkju. Vox Fox sungu dásamlega, þetta voru ljúfir og bara alveg frábærir tónleikar. 

Stórfjölskyldan borðaði saman kræsingar að vanda og humarinn auðvitað í veigamiklu hlutverki.

Á þriðjudag fórum við hjónin og Jana Mekkín með Árna og Borghildi vinafólki okkar sem kom í síðbúna humarhátíðar heimsókn á mánudag í Kollumúla. Þangað hafði ég aldrei áður komið. Hressandi ganga í fallegu og stórbrotnu landslagi. Fengum ljómandi gott veður, rigningin og súldin náði ekki til okkar þarna í Lónsöræfunum. 

Nú er stytt upp í bili. Vonandi fer þessari rigningartíð að slota. Ég er alveg að komast í sumarfrí. Tek vaktir um helgina og svo bæjarráðsfundur á mánudag. Þá tekur við sumarfrí með fjölskyldunni :)


Skóla-, íþrótta- og tómstundamál

Eru engin smámál! Það eru mörg verkefni framundan í okkar góða samfélagi, framhald af þeirri vinnu sem verið er að vinna núna og að hluta til er lokið.

Miklar breytingar voru gerðar á Hafnarskóla síðastliðið sumar sem voru róttækar og bættu vinnuumhverfi og aðstöðu bæði nemenda og kennara til mikilla muna. Nú um þessar mundir er haldið áfram vinnu í Sindrabæ til heilla fyrir tónskólanemendur og kennara þeirra. 

Nú er farið að huga að hugmyndarvinnu fyrir bætta aðstöðu í Heppuskóla. Þá vakna spurningar um millibyggingu milli sundlaugar og íþróttahúss/Heppuskóla. Er það eitthvað sem við viljum ráðast í og hvernig getum við best nýtt millibygginguna fyrir íþrótta-, skóla- og jafnvel tómstundastarf? Þ.e. ef farið verður út í að byggja!! 

Þetta eru stórar spurningar sem við nefndarfólk í skóla-, íþrótta - og tómstundanefnd erum að velta fyrir okkur. En fólkið sem vinnur á umræddu svæði þ.e. nemendur, kennarar og starfsfólk íþróttamannvirkjanna þarf einnig að velta þessu fyrir sér. Þá hafa foreldrar og aðrir áhugamenn um nýtingu svæðisins örugglega góðar hugmyndir og gagnlegar fyrir okkur sem komum að sjórn þessara mála. Hugmyndavinnunni mun verða fundinn farvegur þegar hausta tekur. Þangað til látum við hugann reika og horfum í kringum okkur, skoðum það sem vel er gert annarstaðar og söfnum í sarpinn.


Afmæli!!

Í dag hófst nokkurra daga afmælishrina ættingja, makans og vina!

Fyndið hvað fæðingardagar þeirra sem standa manni næst raðast oft skemmtilega upp. Núna í dag hófst einmitt ein svona hrina í minni fjölskyldu. Mágkona og frænka í dag, fósturdóttir/frænka á morgun, eiginmaðurinn á mánudag, tilvonandi tengdadóttir á þriðjudag - gat á miðvikudag. Amma elskuleg 92ja á fimmtudag,  Áslaug vinkona og Kalli frændi á föstudag. 

Þarf endilega að kynnast einhverjum sem á afmæli 30. júní!! Vantar einn dag þarna inná milli. :-)

Annars er það einnig algengt að fólk deili dögum í minni fjölskyldu. Ég og Dalli svili eigum einmitt sama afmælisdag, Aron minn og Gígja hans pabba, mamma og Jana mín. Mikið í pörum. 

En þrátt fyrir alla þessa afmælisdaga þá er svo yndislegt að innst inni er maður ekki að eldast svo mikið. Einhvern vegin finnst mér unga fólkið vera að taka fram úr mér. 

En það eru forréttindi að fá að eldast. Það er svo sárt að þurfa að kveðja og horfa á eftir fólki í blóma lífsins kveðja þessa tilvist. Ég eins og margir á mínum aldri hef þurft að kveðja ættingja og vini langt um aldur fram. Af virðingu við þá einstaklinga finnst mér að við eigum að fagna hverjum afmælisdegi og muna að njóta dagsins í dag þó að við gerum plön til framtíðar og horfum þangað galvösk.

Elsku dúllurnar mínar Anna, Hafdís, Karen Eik, Jónas, Inga Birna, Amma Jana, Kalli og Áslaug til hamingju með afmælisdagana ykkar ! Risastórt knús ;-)


Vika í Humarhátíð!

Nú eru margir farnir að telja niður í Humarhátíð, vika til stefnu! Hvernig skyldi veðrið verða? Hverjir voru nú aftur í fyrra og hverjir ætla að koma í ár? Það fer nú örugglega eitthvað eftir veðrinu en það verður nóg við að vera það er alveg víst.

Dagská hefst á miðvikudag með Humarfyrirlestri Gumma í Matís og tónleikum Nönnu Imsland og Hrafns Eiríkssonar í Nýheimum. Síðan rekur hver viðburðurinn annan fram á sunnudag. 

Íþróttir, tónlist, myndlist, gleði og góður matur. Allt þetta verður í boði á Höfn í Hornafirði á Humarhátíð helgina 2. -4. júlí.

Verið öll velkomin og góða skemmtun :-)


Langur dagur í dag!

Dagurinn í dag hefur einkennst af fundarsetu. Svo sem ágætt að skella þessu á fáa daga og afgreiða mörg mál. Alltaf gott þegar mál eru í góðum farvegi.

Fyrsta fundinn sátum við í framkvæmdaráði HSSA með Daníel Imsland sem kynnti fyrir okku vinnu sína við að hanna logo fyrir stofnunina og skemmst er frá því að segja að við vorum mjög ánægðar með vinnuna hans. Hann var þarna með flott logo sem að unnið verður með. Svo það mál má teljast afgreitt.

Síðan hittum við Guðrún Júlía Ragnhildi Jóns frá Þekkingarneti Austurlands. En við erum í ákveðinni undirbúningsvinnu með henni varðandi fræðslumál. Það er líka í góðum farvegi.

Í hádeginu hitti ég félaga mína úr meirihlutanum í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd við fórum yfir fyrirliggjandi mál varðandi fund nefndarinnar sem var svo kl. 16.15 í dag. Með okkur sátu Stefán Ólafsson starfsmaður nefndarinnar og Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri.

Þá var síðasti fundur dagsins með öllum aðal- og  varamönnum sem gátu mætt á skóla-, íþrótta og tómstundanefndarfund auk starfsmanns, og annarra fulltrúa sem sitja sem fulltrúar hinna ýmsu hópa.

Fundurinn hófst á vettvangsheimsókn í Heppuskóla, íþróttahús og svæðið það í kring. Það var að mínu viti mjög gagnleg heimsókn sem mun nýtast vel í komandi hugmyndavinnu um endurbætur og uppbyggingu á svæðinu sem fara mun fram á vettvangi nefndarinnar í samráði við starfsfólk, foreldra og aðra hagsmunaaðila. 

Það var mikil dagskrá fyrirliggjandi fyrir fyrsta fund og mesta furða hvað vel gekk hjá okkur en fundinum lauk kl. 18:40. Vel af sér vikið það! Fundargerð mun birtast í fullri lengd á stjórnsýsluvef sveitarfélagsins.

Ekki fleiri fundir í dag enda nóg komið!


Jákvætt viðhorf!

Ég var rétt í þessu að lesa síðuna hans Sigurðar Erlingssonar  - Leiðin til árangurs á mbl.is Þetta er frábær síða með svo góðum punktum. Ég er ný farin að fylgjast með honum eftir að ég rambaði þar inn í gegnum facebook. Sá hann hjá henni Agnesi frænku sem er líka alveg yndisleg manneskja.

En þessi inngangur er nú orðinn frekar langur. Þar sem ég las nýjustu færsluna hans Sigurðar þá fór ég að spá í minn eigin hugsanagang og hvernig hann hefur þróast.

Fyrir u.þ.b. 12-14 árum tók ég mig markvisst á með það hvernig ég hugsaði. Það var allt ómögulegt, það var ekkert spennandi að gerast í mínu lífi að mér fannst og ég ómöguleg. Þá var mér bent á að þetta hugarfar héldi mér í neikvæðri orku og eintómum leiðindum. Að jákvæðar hugsanir og viðhorf virkuðu sem segull á jákvæða hluti. Mig langaði að flytja, þá sagði góð kona. Blessuð málaðu vegg, breyttu einhverju í litlu íbúðinni þinni ef þú ert sátt og sæl þá er aldrei að vita hvað gerist. Ég málaði einn lítinn vegg og keypti púða í sófann í stíl við vegginn. Alsæl og sátt, hlutirnir fóru að rúlla. Breytingar urðu í mínum húsnæðismálum.

Svo að ég fór að reyna að temja mér jákvæðan hugsanagang og það er svo miklu léttara en að sjá alltaf það ljóta og leiðinlega. Þetta er vinna, hörku vinna en ég man samt ekki hvenær þetta hætti að vera vinna og varð bara ósköp eðlilegur hlutur. 

Vandamálin eru ekki vesen heldur verkefni. Leitum lausna. Styrkjum það góða og skemmtilega. Þó að við höfum framtíðarsýn og markmið í lífinu þá meigum við ekki gleyma núinu. 

Njótum dagsins í dag. Ekki geyma öll gæðin til framtíðar því að við vitum ekki hve langan tíma við höfum. Það eru alltof margir vinir og skólafélagar sem eru farnir í ferðina löngu. 

Njótum dagsins í dag. Vinnum saman, tölum saman og sendum jákvæða strauma frá okkur öllum til heilla. Lestu bloggið hans Sigurðar það er gott :-)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband