10.11.2010 | 21:22
Kraftur - Hugmyndir
Það er kraftur í fólki á Hornafirði þessa dagana. Undirskriftum hefur verið safnað síðustu daga vegna boðaðs niðurskurðar á HSSA og verða þær afhentar heilbrigðisráðherra á morgun. Ég hef fulla trú á því að verið sé að fara í gegnum þær upplýsingar sem ráðuneytið hefur verið að safna síðustu vikur og að niðurskurður til heilbrigðismála verði endurskoðaður vel. Það kann að þýða að fleiri stofnanir verði fyrir skerðingu en til stóð í upphafi en það hlýtur að vera heillavænlegra en að skerða grunnþjónustu svo mikið á landsbyggðinni þannig að öryggi íbúa og annarra sem eiga erindi um landið sé ógnað.
En það er ekki bara heilbrigðisþjónustan sem þarf að hagræða og draga saman. Nú vinna starfsmenn bæjarins og við bæjarfulltrúar hörðum höndum að fjárhagsáætlun fyrir 2011. Framlög frá ríkinu munu dragast saman og ekki er líklegt að útsvarstekjur munu aukast. Hér þarf að draga saman í rekstri sem og annars staðar.
Hvaða leið skal fara? Skera niður, hækka gjöld? Nota sjóði sem til eru eða skal nýta þá til framkvæmda? Þessir punktar komu allir fram á síðasta bæjarstjórnarfuni sem nú má sjá á stjórnsýsluvef www.rikivatnajokuls.is Gaman væri að fá viðbrögð frá bæjarbúum um sýn þeirra á þessi mál. Athugasemdir - hugmyndir má endilega skrifa hér í athugasemdir eða senda mér tölvupóst á asgerdur@hornafjordur.is
Þetta er samfélagslegt verkefni sem að við vinnum saman að.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2010 | 22:09
Án titils
Undanfarnar vikur hafa farið í viðbrögð við fjárlögum ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2011. Það kreppir að eins og hvert mannsbarn á Íslandi sem fylgist með fréttum eða umræðum manna á milli veit. Landsbyggðin hefur hingað til ekki farið eins illa út úr hruninu eins og höfðuborgarsvæðið og nærsveitir þess en nú skulum við sko aldeilis fá að taka á því.
Heilbrigðisstofnanir eru kreistar svo að úr blæðir. Heilbrigðismál eru orðin að byggðarmálum hvort sem okkur líkar betur eða verr. Síðast liðna viku hef ég gengið á fund fjárlaganefndar, þingmanna suðurkjördæmis, ráðherra og starfsmanna heilbrigðisráðuneytisins með félögum mínum í bæjarráði, bæjarstjóra og samstarfskonum í framkvæmdaráði HSSA.
Af þessum fundum er ljóst að alvaran er algjör, skorið skal niður. Hér heima höfum við velt upp öllum hugsanlegum möguleikum til hagræðingar og lögðum fram á fundunum þær hugmyndir sem til greina koma. En ljóst er að ekki verður hægt að reka HSSA fyrir það fé sem fyrstu tillögur fjárlaga ganga út frá. Nú bíðum við næstu umræðu um fjárlög og þeirra tillagna sem lagðar verða fram á þeim tíma. Þangað til höldum við áfram að brjóta bauka og velta steinum í leit að gulli og góðum hugmyndum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.10.2010 | 21:33
Fjárlög!
Það er ekki smávaxið verkefni sem býður stjórnenda og starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar ef miklar breytingar verða ekki á þeim niðurskurði sem boðaður er í fjárlögum fyrir árið 2011.
Öll áttum við von á niðurskurði en þær tölur sem birtust í gær voru skuggalegri en nokkur gat getið sér til um. Ráðherra hefur gefið út að þetta sé nú ekki alveg svona, hann vissi ekki hvernig tölurnar voru því þetta sé vinna frá fyrrverandi ráðherra!! Vonandi sest Guðbjartur nú við að skoða þessi mál, hann mun vonandi bera gæfu til þess að breyta tölunum á átt til minni niðurskurðar.
En á vef stjórnarráðsins er tekið fram í "Helstu atriði fjárlagafrumvarps 2011" - í lok punkts tvö. "Í aðhaldsaðgerðum ríkistjórnarinnar er leitast við af sem mesta megni að hlífa velferðarþjónustu og kjörum þeirra tekjulægstu." Þannig að þetta hlýtur að vera einhver misskilningur!
En eitt er víst að við stjórnendur heilbrigðisstofnanna og sveitarstjórnarfólk munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að verja það sem við höfum og vinna svo eins vel og hægt verður úr því sem við fáum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2010 | 21:32
Framtíðin í fámenni.
Var yfirskrift ársfundar Stofnunnar fræðasetra Háskóla Íslands sem haldinn var hér á Hornafirði í gær. Mörg áhugaverð erindi voru flutt á fundinum og áhugaverð umræða. Það var gaman fyrir mig sem íbúa hér á Höfn að heyra hve mikið er litið til Nýheima sem módels í vel heppnuðu samstarfi stofnanna í menntun, rannsóknum og nýsköpun. Ég fylltist stolti og ánægju með gang mála í því samfélagi.
Háskólasetrið okkar glímir nú eins og margar aðrar stofnanir við ógn um niðurskurð. Þau vita að af honum verður en ekki hve mikill hann verður. Þetta er eins og við vitum vond staða en eftir fundinn í gær er ég sannfærð um að setrið á eftir að rísa sem aldrei fyrr með fjölbreytt og spennandi verkefni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2010 | 11:22
Hjartans mál!
Í dag 26. september er hjartadagurinn, þá er gott að staldra við og skoða sín hjartans mál.
Það sem flestum okkar dettur fyrst í hug er að taka okkur á í hreyfingu og mataræði. Það er grunnurinn að þessu öllu og atriði sem við höfum stjórn á eða viljum hafa stjórn á.
Hins vegar er það oft ansi erfitt að hafa sig í breytingar þó við vitum að það sé okkur fyrir bestu.
Hjartans mál eru annars af ýmsum toga. Ég er fædd með hjartagalla og var gert við hann í London þegar ég var krakki. Mörg börn og fjölskyldur þeirra þurfa að glíma við slík vandamál og tækninni fleytir fram í greiningu og meðferð á slíkum vanda.
Fyrir fimm árum síðan lét hjartað síðan aftur á sér kræla eða kannski væri réttara að segja að það hafi verið búið á því og hjartslátturinn minn dugði varla til að viðhalda daglegri virkni. Þetta ágerðist hægt og bítandi þannig að ekki var alveg ljóst alla vega fyrir mér hjúkrunarfræðingnum hvað væri í gangi. Vöðvabólga hlaut að vera skýringin á höfuðverkjum, svimaköstum og almennum slappleika!
Eftir læknisskoðun og sólarhringshjartalínurit var málið ljóst. Mjög hægur púls. Ég var heppin í mínu hjartans máli, fékk gervigangráð sem sér til þess að ég er alltaf fyrir ofan 60 slög á mínútu í hjartslætti. Það er nú ekkert voða smart að vera með ör á bringunni og dós þar undir húðinni en það er mín líflína og afar kær.
Í dag er þetta ör og óþægindi, ef einhverra hluta vegna krakkarnir mínir reka sig í "dósina" eins og við köllum gangráðinn það eina sem minnir á að mitt hjarta er ekki alveg í lagi.
Þetta er mitt hjartans mál, til hamingju með daginn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2010 | 21:09
Áfram veginn!
Þessa dagana er verið að undirbúa ferð bæjarráðs í höfuðborgina þar sem við munum hitta fyrir fulltrúa í fjárlaganefnd, ráðherra og embættismenn til að fylgja eftir málefnum sveitarfélagsins okkar vegna fjárlaga ríkisins fyrir 2011. Einnig erum við farin að huga að fjárhagsáætlun fyrir 2011. Í þeirri vinnu þarf að huga að ótal hlutum og örugglega að mörgu sem mér er ekki farið að detta í hug ennþá.
Í þessu samhengi er verið að skoða hvaða framkvæmdir við viljum fara út í. Hvernig er fé okkar best varið. Á að byggja, breyta eða jafnvel selja? Hvaða starfsemi á að vera á vegum sveitarfélagsins, erum við í einhverjum verkefnum sem betur er borgið hjá einkaaðilum?
Ég sá að Kristján félagin minn Guðnason veltir því upp á fésbókarsíðu sinni hvernig fólk vill sjá Pakkhúsið eða réttara sagt hvaða hlutverki það eigi að gegna! Á sveitarfélagið að eiga Pakkhúsið eða jafnvel selja það?
Hugmyndavinna er nú í gangi varðandi lok á framkvæmdum á skóla- og íþróttasvæði við Heppuskóla. Góðar hugmyndir hafa borist frá starfsfólki Heppuskóla, foreldrar voru hvattir til að koma með hugmyndir og nú eru kjörnir fullrtúar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að undirbúa sinn vinnufund. Þar er um að ræða framkvæmdir sem gott er að fá álit og áherslur frá öllum hagsmunaaðilum á vinnslustigi. Breyta, bæta og jafnvel byggja!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2010 | 16:31
Nýja hlutverkið!
Fór í mína fyrstu pólitísku embættisferð á fund nefndar um yfirfærslu málefna fatlaðra í gamla Félags- og tryggingamálaráðauneytið í gær. Var þar í góðum félagsskap bæjarstjórans Hjalta Þórs Vignissonar og Guðrúnar Júlíu Jónsdóttur framkvæmdastjóra HSSA og samstarfskonu minnar. Okkur var vel tekið af nefndinni. Við færðum rök fyrir ósk sveitarfélagsins um að við yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga um áramót, verði málaflokkurinn áfram hér heima í héraði eins og verið hefur frá gerð Reynslusveitarfélagssamnings sl. 14 ár. Þrátt fyrir að íbúafjöldinn nái ekki þeim viðmiðum sem sett er upp í markmiðum nefndarinnar.
Frá 1997 hafa málefni fatlaðra verið í umsjón sveitarfélagsins og heilbrigðis- og öldrunarmál frá 1996. Gengið hefur mjög vel að sinna og samþætta þessa þjónustu og væri það skref til baka og andstætt markmiðunum með yfirfærslunni ef við þurfum að veita þessa þjónustu á stærra þjónustusvæði þ.e. í samvinnu við önnur sveitarfélög.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2010 | 22:40
158. fundur
Bæjarstjórnarfundur í dag. Breyttum sviðsmyndinni vegna fjölda áskoranna frá dyggum áhorfendum útsendingar í Skjávarpi. Sumir voru leiðir á að horfa á hvítann vegg að baki ræðumanna. Nýttum glæsilega mynd af Jökulsárlóni frá WOW- Í Ríki Vatnajökuls. Kemur bara ljómandi vel út að mínu mati.
Fundurinn var einnig ljómandi góður. Fundargerð aðgengileg á stjórnsýsluvef og sú nýbreytni verður tekin upp að nálgast má fundinn í mynd. Myndin verður kaflaskipt ef svo má segja, ekki þarf að horfa á fundinn í heild sinni heldur má velja það sem vekur áhuga hvers og eins hverju sinni. Það verður spennandi að sjá hvort íbúar taka ekki vel í þessa nýjung og fylgjast vel með því sem við bæjarfulltrúar erum að fást við á hverjum tíma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2010 | 18:43
Konur út - karlar inn!!
![]() |
Nýir ráðherrar formlega skipaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2010 | 20:06
HSSA
Fundadagur í dag eins og marga aðra daga hjá mér síðustu mánuði. En í dag var fyrsti Umönnunarfundur haustsins á hjúkrunar- og sjúkradeild. Á þessum fundi varð ég mjög svo vör við það hvað tíminn líður hratt því vaktaskipulagið hjá okkur fær mann til að hugsa marga mánuði fram í tímann og það getur verið pínu ógnvekjandi.
Gerðum einnig upp sumarið. Starfsfólk HSSA hefur staðið sig frábærlega. Ekki tókst að manna í allar afleysingastöður þrátt fyrir atvinnuleysi! Langt hefur verið gengið til að halda öll gangandi frá allra hendi og fær starfsfólkið okkar STÓRT HRÓS fyrir það.
Ragnhildur Jónsdóttir ráðgjafi hjá ÞNA kom svo á fundinn til okkar og kynnti prógram sem við ætlum að setja af stað í haust. Það heitir Markviss og snýst um markvissa uppbyggingu starfsmanna. Farið verður í gerð símenntunaráætlunnar og skipulagt nám - Fagnámskeið 2 fyrir starfsfólk í heilbrigðisþjónustu og vinnu með fötluðum. Mjög spennandi vinna framundan.
Eftir hefðbundinn vinnudag var fyrsti fundur nýrrar stjórnar HSSA. Framkvæmdastjóri kynnti starfsemistölur frá 2009, farið var yfir erindisbréf stjórnarinnar og skoðunarferð um stofnunina í lok dagskrár. Það er alltaf gaman að ganga um og sýna stofnunina okkar og segja frá þeirri frábæru starfsemi sem þar fer fram. Ég efa ekki að samstarfið við stjórnina mun verða gott og farsælt hér eftir sem hingað til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)