Skóla- og umhverfismál

Átti góðan fund í morgun með Ragnhildi Jónsdóttur fræðslustjóra þar sem við fórum yfir hennar málaflokk. Hvað er efst á baugi þar núna. Málaflokkurinn er stór leik- og grunnskólar, tómstundamálin og  íþróttamál. Ræddum einnig fullorðins- eða kannski frekar framhaldsfræðslu. Málefni Nýheima o.fl. Mjög gott samtal og margt í gangi :)

Sveitarfélagið á núna flotta Umhverfisstefnu og þættir úr henni tvinnast að sjálfsögðu inní fjárhagsáætlunargerðina. Fór yfir það með formanni og varaformanni umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir fund nefndarinnar í dag.


Fjárhagsáætlun 2014!

Verkefnin þessa dagana snúast að miklu leyti um fjárhagsáætlun næsta árs og næstu ára.Eðlilega á þessum tíma árs. Forgangsröðun verkefna, framkvæmdir, fjárfestingar, viðhald og svo auðvitað almennur rekstur. Það er að mörgu að hyggja, margt sem þarf og væri gaman að gera.

Fyrsta umræða um fjárhagsáætlun fer fram í bæjarstjórn n.k. fimmtudag og verður svo í vinnslu til seinni umræðu sem fer fram 12. desember.

Bæjarráð vísaði einnig Búnaðarstefnu og Safnastefnu til bæjarstjórnar í gær.

Breyting verður á fullorðinsfræðslu á Hornafirði um næstu áramót þegar sveitarfélagið hættir samvinnu við Austurbrú og samvinnan fer yfir á suðurland. Við Háskólafélag Suðurlands og Fræðslunet Suðurlands. Yfirfærslan þar á milli er í vinnslu og gott að vita að það sé að smella í góðan farveg.


Kaflaskil, nýtt verkefni!

Í gær 1. nóvember 2013 hófst formlega nýr kafli í starfsfelilskránni! Þá tók ég formlega við sem bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Það er spennandi verkefni sem ég fæ tækifæri til að spreyta mig á fram að næstu kosningum í vor.

Hjalti Þór Vignisson sem gengt hefur þessu embætti frá 2006 skipti um starfsvettvang og óska ég honum alls hins besta í nýju starfi og þakka honum kærlega fyrir samfylgdina í bæjarmálunum. Það hefur verið gott og lærdómsríkt að vinna með Hjalta og ég bý að þeirri reynslu til framtíðar.

Ella mágkona var líka að byrja í nýrri, gamalli vinnu. Nú hefur hún sagt skilið við lyfjamarkaðssetningu og hefur hafið störf aftur við hjúkrun á gömlu deildinni sinni á Landspítalanum. Ekki amalegt þar að fá þessa yndislegu konu aftur til starfa og ekki veitir af að fá gott og flott fólk inní heilbrigðisþjónustuna aftur eins og staðan er í dag á þeim vettvangi!!

Fyrsti vinnudagurinn fór svo í frábæra ráðstefnu á vegum Ríki Vatnajökuls - Tilvist og Tækifæri.  Flottir fyrirlestrar og vinna þar á ferð sem kemur sér vel í áframhaldandi vinnu.

Lífið er breytingum háð!

Örugglega fleiri sem hafa verið að skipta um vinnu um mánaðarmótin. En ég á þá ósk að við munum öll bera gæfu til þess að gera góða hluti og láta gott af okkur leiða :)


Rauða kross búð á Hornafirði!

Á morgun mánudaginn 21. mars verður opnuð Rauða kross búð á Hornafirði. Búðin er staðsett í húsnæði deildarinnar að Víkurbraut 2, við hliðina á veitingahúsinu Víkinni. Fyrsta daginn verður opið frá klukkan 17-19. Síðan verður opnunartími auglýstur á staðnum þar sem þetta er tilraun og unnið eftir aðstæðum hverju sinni.

Í  búðinni verða til sölu notuð föt og skór sem fenginn er frá fataflokkunarstöð Rauða krossins í Reykjavík. Einnig prjónavörur sem hópur sjálfboðaliða í Dagvistinni í Ekru vinnur og gefur Rauða kross deildinni til fjáröflunnar. Allur ágóði sem hlýst af þessari sölu fer til hjálparstarfs.

Maríanna Jónsdóttir hefur veg og vanda af uppsetningu Rauða kross búðarinnar og kemur til með að sjá um verkefnið. En líkt og í öðrum Rauða kross búðum er vinnuframlag hennar sjálfboðið starf.

Ég vil hvetja Hornfirðinga til að líta við á Víkurbrautinni, skoða úrvalið og leggja góðu málefni lið. Einnig er tekið á móti fatnaði á opnunartíma hvort sem fólk óskar þess að fatnaður sé sendur í fataflokkunarstöð eða til sölu á staðnum.


Gleymum ekki hjálminum!!

Í dag er gott veður hér á Höfn í Hornafirði. Það gefur góð fyrirheit um að vorið sé á næsta leiti. Þó það sé enn snjór í fjöllum og auðvitað mikill snjór víða á landinu þá fór ég að hugsa um hjólreiðar og mikilvægi þess að gleyma ekki hjálminum.

Einnig rakst ég á grein á visir.is sem segir frá slysi Margrétar Stefánsdóttur. En hún gleymdi hjálminum datt og rak höfuðið í gangstéttarkant og slasaðist á höfði. Ég óska Margréti góðs bata en samkvæmt frásögn systur hennar þá á hún enn langt í land þrátt fyrir að tæpt ár sé frá slysinu.

Það sem ég vill leggja áherslu á, eins og tilgangurinn með greininni um Margréti gerir líka er að benda á mikilvægi hjálmsins sem öryggistækis. Við hvetjum börnin okkar til að nota hjálma svo á ákveðnum aldri missir fólk oft tökin á þessum málum og börnin neita að nota hjálm og komast sum hver upp með það sem er ekki nógu gott. 

Við foreldrarnir erum hins vegar fyrirmynd og eigum að ganga á undan með góðu fordæmi og nota hjálm sjálf. Ég hef gert það um margra ára skeið. Alveg síðan ég vann sem skólahjúkrunarfræðingur. Þá fór ég að nota hjálm af skyldurækni þar sem ég var að hvetja börnin til hjálmanotkunnar. Í dag mörgum árum síðar get ég enn ekki hjólað án hjálms sem betur fer. 

Hins vegar leiðist mér afskaplega að sjá fjölskyldur saman í hjólatúr þar sem börnin eru með sína hjálma en mamma eða pabbi hjálmlaus annað eða bæði og stundum húfa í stað hjálmsins. 

Berum virðingu fyrir kollinum á okkur og öllu því flókna starfi sem þar er unnið og setjum hjálm á höfuðið þegar við förum út að hjóla. Því að eins og saga Margrétar Stefánsdóttur segir okkur þá getur eitt fall haft gífurleg áhrif. 

 

 


Úttekt á starfsemi Grunnskóla Hornafjarðar

Framsaga mín um "úttekt á Grunnskóla Hornafjarðar" sem ég flutti á síðasta bæjarstjórnarfundi fimmtudaginn 3. mars 2011.

Í upphafi vil ég segja að það er kærkomið að fá þessa skýrslu í hendur sem ber yfirskriftina Úttekt á starfsemi Grunnskóla Hornafjarðar.  Skammt er liðið á kjörtímabilið og við sem sitjum í skólanefnd og í bæjarstjórn getum því unnið út frá skýrslunni á næstunni.   Hún varpar bæði ljósi á það sem vel er gert og einnig hvar við getum lagað til ákveðna þætti í starfinu til að ná betri árangri.   Það er mikilvægt að komi fram að skýrslan er unnin að frumkvæði bæjarráðs sem óskaði eftir því með bréfi til ráðuneytisins að taka þátt í þessu verkefni.  

Markmið úttektarinnar var að leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum um grunnskóla, reglugerðum og aðalnámsskrá grunnskóla. Þeir þættir sem meta átti í úttektinnu voru stjórnun, skipulag kennslu, innra mat, námskröfur og fyrirkomulag námsmats.

Lögin sem skýrslan byggir á eru frá árinu 2008 og eru því einungis tveggja ára gömul og á síðustu þremur- fjórum árum hefur staðið yfir sífellt breytingarferli í grunnskólanum. Fyrst með sameiningu Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla í eina skólastjórn, síðan flutning skólahalds úr Nesjum á Höfn og mannabreytingar í skólastjórn.  Allt hefur þetta reynt mikið á starfsfólk og stjórnendur skólans.   

Eftir lestur skýrslunnar er ég sannfærð um að skólinn er á réttri braut og mörg þau skref sem stigin hafa verið á síðustu árum hafa verið til heilla.  Það væri til dæmis fróðlegt að velta fyrir sér hvaða áherslur hefðu verið dregnar fram ef þessi skýrsla hefði verið gerð þegar skólarnir voru allir sjálfstæðir.  Með þessu er ég ekki að segja að við séum kominn að endamarkinu, langt frá því. 

******

Ég vil leggja áhersu á að í bréfi sem mennta- og menningarmálaráðuneytið sendi þann 24. febrúar sl. til sveitarfélagsins með niðurstöðu úttektar á starfsemi Grunnskóla Hornafjarðar kemur fram að margir lykilþættir skólastarfsins eru í góðum farvegi.  Þar segir meðal annars, með leyfi forseta:  „úttektaraðilar telja meðal styrkleika skólastarfsins að meiri samfella sé í skólastarfinu eftir sameiningu, að nýsköpun og listir skipi hærri sess, lýðræðisleg vinnubrögð og jafnrétti séu ríkjandi í samskiptum og að mikill vilji sé til að efla Grunnskóla Hornafjarðar bæði hjá aðilum innan skóla og utan.  Einnig nefna þeir að vilji sé hjá skólastjórnendum til að efla foreldrasamstarf, að upplýsingaflæði sé gott í skólanum og boðleiðir greiðar.  Þá hefur áætlun gegn einelti fyrir nemendur verið unnin, ánægja er með sérkennslu skólans, andrúmsloft í skólanum er jákvætt og gott, val nemenda er fjölbreytt og tengsl skólastiga eru góð.“

Eins og ég sagði áðan að þá hefur breytingarferlið, flutningurinn og sameiningin ásamt öðru hindrað framgang ýmissa mála.  Í ofangreindu bréfi ráðuneytisins segir , með leyfi forseta: „Meðal helstu veikleika skólastarfsins telja úttektaraðilar vera að sameiningarferli skólanna tveggja stendur enn og hindrar skólaþróun, skólastefna á vegum sveitarfélagsins er ekki fyrir hendi, sérstaða skólans birtist ekki með nógu skýrum hætti í þeim gögnum sem fyrir liggja, umfjöllun og samþykkt skólanámskrár og starfsáætlunar skólans er ábótavant svo og skilgreiningar á námsmarkmiðum.  Ekkert innra mat í skilningi laga og aðalnámskrár hefur farið fram til þessa og kennara hafa litla vitneskju um innra mat.  Þá telja úttektaraðilar að starfsáætlun skólans sé ábótavant og stefnu sveitarfélagsins í málum nemenda sem þurfa sérþjónustu skorti.“

Það eru því augljóslega ýmis viðfangsefni við að etja í framhaldinu.  Skólanefnd hefur fjallað um málið og nú tekur við vinna við að gera áætlun og setja  fram aðgerðir til að bregðast við ábendingum sem fram koma í skýrslunni.  Þó vil ég benda á miskilning eða yfirsjón þeirra sem rita niðrustöðubréfið fyrir hönd Mennta- og menningamálaráðuneytisins því skólastefna sveitarfélagsins er vissulega fyrir hendi og er rætt um hana í í úttektinni. Þar er tekið fram að ágætt samræmi sé milli stefnu sveitarfélagsins og þeirra leiðbeininga um skólastefnu sem samband íslenskra sveitarfélaga gaf út árið 2010. Þó vantar í hana áætlanir, árangursmælingar og eftirfylgni sem hvatt er til að bætt verði úr við næstu endurskoðun skólastefnunnar. Hins vegar hefur grunnskólinn ekki markað sér stefnu út frá skólastefnu sveitarfélagisns og eftir því er kallað í niðurstöðum skýrslunnar, einnig hefur þeim yfirsést að þrír skólar voru sameinaðir en ekki tveir!. Þess ber að geta að gagnaöflun var unnin í október og nóvember, en skólastarf var þá skammt á veg komið. Ýmis atriði sem athugasemdir voru gerðar við eru nú þegar komin í farveg svo sem vinna við innra mat skólanns. Gerð aðgerðaráætlunar  verður lokið í apríl mánuði eins og ráðuneytið fer fram á.

****

Hluti af þeim ábendingum sem settar eru fram í skýrslunni tengjast vafalaust  því að ýmis ákvæði laga um grunnskóla frá 2008 hafa ekki verið tekin upp eða hefur ekki verið lokið við að uppfylla.   Hins vegar bera margar athugasemdir þess merki að margt hafi verið gert vel án þess að það falli bókstaflega að skilningin laga.  Á þetta til dæmis við um athugasemdir um skólanámskrá og tengsl hennar við aðalnámskrá og skólastefnu.  Þarna finnst mér úttektaraðilar hengja sig að miklu leyti við formið án þess að veita innihaldinu nægjanlega eftirtekt.  Fyrsta verkefnið er því að fara yfir lagabókstafinn og aðlaga þær áætlanir og stefnur sem skólinn hefur sannarlega sett sér - að gildandi lögum.

Næsta meginverkefni er að skólanefnd taki upp kerfisbundið eftirlit með skólum sveitarfélagins.  Í skýrslunni segir að nefndin sinni ekki hlutverki sínu í þeim málum.  Um þetta má deila og hér reikar hugurinn aftur að því hvort formið hafi verið að þvælast fyrir innihaldinu hjá úttektaraðilum, og úttektar aðferðin þ.e. viðtöl og gagnaöflun að mestu leyti á netinu hafi ekki alveg verið að gefa rétta mynd. Skólanefnd hefur auðvitað bæði haft eftirlit og skipt sér að skólastarfi.  Til að bregðast við þessum athugasemdum úttektaraðila verður skoðað að taka upp matskerfi sem mæli heildstætt árangur skólans út frá viðhorfi starfsfólks, stjórnenda, nemenda og svo fjárhag skólans.  Þannig fær skólanefnd árlega í hendurnar upplýsingar um þróun þessara mála og ætti því að geta rætt hlutina út frá þeim staðreyndum og brugðist við ef þarf.  Hættan við þessi matskerfi er það að þau fangi ekki alla þá eiginleika sem við teljum mikilvæga fyrir skólastarfið.  Að það verði hreinlega út undan og fái ekki mikla athygli, því  margt jákvætt og gott starf er unnið í skólanum.  Það verður því að velja matskerfið að kostgæfni.

Þriðja verkefnið er að koma á betri tengslum á milli skólanefndar, skólastjórnenda og kennara til dæmis er varðar setningu skólanámskrár. Einnig virðist hlutverk og eftirlit skólanefndar vera óljóst í hugum skólastjórnenda og kennara, eftir því sem haft er eftir þeim úr viðtölunum, úr því þarf að bæta.

+++

Þá leitar jafnframt á hugann við lestur skýrslunnar sú hvort ýmislegt sem talið er að skólinn þurfi að bæta sig í,  sé ábótavant hjá sveitarfélaginu í heild sinni,.  Við ræddum hér um innra mat á skólatarfi, gæðaþróun og á nokkrum stöðum er vikið að vefumsjón og upplýsingamálum.  Við skulum ekki falla í þá gryfju að telja að ef þessum þáttum er ábótavant í skólasamfélaginu að önnur starfsemi sveitarfélagsins geti ekki fallið þar undir.  Ég spyr því hvort ekki sé rétt að íhuga  að sérstakur starfsmaður verði ráðinn til að sinna þessum málum í heild sinni fyrir sveitarfélagið, þ.e. innleiðingu á heildstæðu gæðakerfi og til að sinna vefumsjón og upplýsingamálum?

Það getur nefnilega verið skýring á því af hverju skólinn hefur ekki náð utan um alla þá þætti sem þarf í skilningin laga um grunnskóla, að skólanefnd, bæjarstjórn og stjórnsýslan hafi ekki stutt nægjanlega vel við skólann.  Að lokum vil ég segja að það er mjög mikilvægt fyrir alla sem bera hér ábyrgð á vexti og viðgangi þessa samfélags að kynna sér skýrsluna í heild, velta henni fyrir sér frá öllum hliðum og nýta hana á uppbyggilegan hátt í skólasamfélaginu.

Ég sagði í upphafi að við séum á réttri leið, sameining skólanna var heillaspor en sameiningarferlinu þarf að ljúka.  Skýrslan ber þess merki að nú þurfum við að leggja krafta okkar í önnur verkefni. 

 


Tímamót um áramót!

Áramót eru góð tímamót til að fara yfir stöðu mála. Hvernig var síðasta ár og hver eru markmiðin fyrir árið sem er að byrja.

Árið 2010 var ár mikilla anna og breytinga hjá mér og minni fjölskyldu. Ný og krefjandi verkefni sem kröfðust skipulagshæfileika og samvinnu. Þetta gekk nú allt upp en við erum enn að slípa til og finna taktinn. 

Samvinna er kannski það sem stendur uppúr. Bæði innan fjölskyldunnar og í stærra samhengi. 

Vinnustaðurinn er ekki ólíkur fjölskyldunni. Þar stefnum við að sameiginlegum markmiðum og með samvinnu allra aukast líkurnar á því að þau náist. Það hefur gengið vel árið 2010, frábær hópur góðs fólks með sameiginleg markmið vinnustaðnum og skjólstæðingum okkar til heilla.

Sem nýr bæjarfulltrúi upplifi ég það sama. Markmið okkar allra í bæjarstjórn er velferð og hagsmunir sveitarfélagisins og íbúanna. Bæjarfulltrúar hafa mismunandi sýn á málefnin og leiðir að markmiðunum. En með góðri samvinnu og heilindum í umræðunni náum við góðum árangri samfélaginu til heilla. 

Snemma árs 2011 verður haldið íbúaþing á Hornafirði. Þar verða til umræðu málefni sem snerta alla íbúa sveitarfélagsins og framtíð okkar. Þar verða til umræðu skipulags, atvinnu- og menningamál. Það hvernig samfélagi við viljum búa í og byggja upp.  Ég hvet alla íbúa sveitarfélagsins til að skoða hug sinn í þessum málum, hvaða tækifæri vijum við byggja upp hér í sýslunni og vinna að framtíðinni og börnunum okkar til heilla. Mæta svo á íbúaþingið og taka þátt í mótun samfélagsins með samvinnu og lýðræði að leiðarljósi.

Þau markmið sem ég set mér fyrir árið 2011 eru að vinna að heilindum og gera mitt besta í því sem ég hef tekið að mér í samvinnu við það góða fólk sem er mér samferða á hverjum tíma.

 Megi árið 2011 færa okkur öllum hamingju, gleði og góð tækifæri Wink

 


Jólakveðja

Snjóföl og blíða, verður ekki betra. Bóndinn og börnin úti að dreifa jólakortum og pökkum. BG og Ingibjörg sjá um tónlistina og í stað þess að hlaupa um með skúringakústinn er gott að setjast niður við tölvuna og senda ykkur sem þetta lesið bestu óskir um góð og gleðileg jól. Bið einnig að heilsa þeim sem ekki lesa bloggið - óska þeim einnig gleðilegrar hátíðar.

Það er svo margt sem ber að þakka og gleðjast yfir. Allir hraustir í dag (sá yngsti með ælupest fyrir sólahring - skyldum við hin sleppa!!) nóg að borða, hlýtt og notalegt inni þó það gusti aðeins fyrir utan. Jólasveinarnir búnir að vera á ferli og gleðja bæði unga og gamla.

Það er ekki bara á heimilinu sem allt er í góðum gír. Við íbúar sveitarfélagsins eigum trygga grunnþjónustu í heilbrigðisþjónustu næsta árið því ekki verður niðurskurður á framlögum til Heilbrigðisstofnunnar Suðausturlands í fjárlögum fyrir árið 2011.

Já, sú vinna sem farið var í milli umræðna um fjárlagafrumvarpið skilaði árangri enda er aðeins um grunnþjónustu að ræða á HSSA. Ég þakka þeim sem komu að þeirri vinnu bæði hér heima, í heilbrigðisráðuneytinu, fjárlaganefnd og svo alþingi fyrir að hafa séð að hér er verið að vinna góða og hagkvæma vinnu fyrir samfélagið og þjóðarbúið.

GLEÐILEGA HÁTÍÐ Wink

 


Velferðarþjóðfélag!

Dag eftir dag upplifir maður hvert sjokkið á fætur öðru sem íbúi og þegn þessa ágæta lands. Eða til skamms tíma var það allavega ágætt! Í dag les maður um hagnað bankanna sem vilja nú alls ekki deila honum með því fólki sem vegna "bankahrunsins" er að berjast í bökkum. Áfram heldur píningin og ekki skal afskrifað hjá almúganum.

Sjúkratryggingar Íslands ætla síðan að segja upp samningi við heimahjúkrun barna. Sérhæfð þjónusta við langveik, fötluð börn og fjölskyldur þeirra, ó já hættum því bara! Þvílíkur farsi sem niðurskurður til heilbrigðismála hefur verið og ætlar greinilega að vera áfram.

Heilbrigðisráðherra mjög góður í að endurskoða eða kannski heldur að fresta niðurskurði allavega sumstaðar. 

Mér dettur í hug tortryggni karakterinn úr Spaugstofunni! Fyrst koma tillögur til fjárlaga með fáránlegum niðurskurði, æ tek þetta til baka. Skerum samt niður og vel það en í samanburði við fyrstu tillögur er þetta ekki svo mikið! En er í raun alltof mikið.

Það er erfitt að verða ekki dapur og leiður í þessu ástandi. Ósanngirnin og óréttlætið hrópar á mann úr öllum áttum. Óöryggið hjá þeim sem eru langveikir, hve gamall sem viðkomandi er. Auknar fyrirspurnir frá aðstandendum eða þjónustuaðilum langveikra sem dvelja í Reykjavík um hvort ekki sé hægt að fá pláss úti á landi. Á heimaslóðunum, þar vill fólk eðlilega vera.  


Íbúafundur

Minni alla Hornfirðinga á íbúafund annað kvöld 18. nóvember á Hótel Höfn kl. 20.

Farið verður yfir stöðuna í heilbrigðismálum og fjármálum sveitarfélagsins.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband