20.11.2013 | 17:09
Af banönum og hádegisveislu!!
Mér og öðrum starfsmönnum á HSSA var boðið í dýrindis hádegisverð í dag. Gamla góða lambalærið með öllu tilheyrandi. Tilefnið var að lokið er við framkvæmdir á deildinni þar sem skipt var um gólfdúk sem tilheyrandi raski.
Heimilisfólk og starfsfólk hefur sýnt fádæma þolinmæði á framkvæmdatímanum. Takk fyrir mig
En ég lenti í smá vandræðum í morgun. Hljóp út í Nettó til að ná mér í eitthvað til að maula í kaffitímanum. Minnug íbúafundsins frá því í gær var ég mjög umhverfismeðvituð í verslunarferðinni. Bananar, ekki framleiddir á Hornafirði og fluttir með mengandi skipi eða flugvél til landsins!!! En ég hugsaði með mér að fyrst þeir væru komnir þá væri nú ekki gott að láta þá skemmast í búðinni og tók þrjá!! Gott að eiga vara banana. Svo langaði mig í kex.... Allt sem mig langaði mest í var útlenskt en ekki kom það nú til greina. Fann íslenskt hafrakex og al íslenskan ost á kexið. En þegar betur var að gáð er kexið bæði í kassa og tvem plastpokum!! En látum það sleppa í þetta sinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2013 | 19:18
Umhverfisdagur!!
Góður fundur á Smyrlabjörgum um fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins. Góðar samræður við þá sem sáu sér fært að mæta og gott veganesti fyrir okkur til áframhaldandi vinnu.
Fjarskiptamál, umhverfismál og skortur á húsnæði í dreifbýli og þéttbýli það sem stendur helst uppúr og við þurfum að vinna að áfram í samvinnu við heimamenn.
Mjög flottur íbúafundur um umhverfismál í samvinnu við Landvernd og Samband íslenskar sveitarfélaga í Nýheimum seinnipartinn. Góð mæting og urmull góðra hugmynda um hvernig við sem einstaklingar og sveitarfélagið getum dregið úr myndun gróðurhúsalofttegunda. Nú tekur við vinna við að vinna úr hugmyndunum sem komu fram og koma í framkvæmd.
Margt sem er í gangi og þarf aðeins að styrkja. Mikil vakning í gangi í umhverfisvitund hjá íbúum sveitarfélagsins sem er frábært.
Fengum góða heimsókn á fundinn frá RÚV, Gísli Einarsson fréttamaður var á staðnum með myndatökumann með sér. Þeir tóku upp efni á fundinum og áttu smá viðtal við mig um hitaveitu á Höfn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2013 | 19:05
Atvinnumál og annað!
Langur bæjarráðsfundur í dag. Hluti af forstöðumönnum sveitarfélagsins áttu samtal við bæjarráð um málefni sinna stofnanna þarfir og stefnu.
Bæjarráð ræddi einnig þá þjónustuskerðingu sem stendur fyrir dyrum í sveitarfélaginu. Breytingar eru að verða hjá nokkrum fyrirtækjum sem verða til þess að þjónusta minnkar og og störfum fækkar. Þetta er áhyggju efni. Einnig rædd staða mála hjá Matís. Stöðvarstjóri Matís á Hornafirði er að hætta störfum og er nú unnið að því að finna lausnir til að halda uppi þjónustu Matarsmiðjunnar og vonandi mun Matís sjá sér hag í því að ráða nýjann starfsmann til starfa hér á Höfn.
Opinn fundur um fjárhagsáætlun Sveitarfélagis á Smyrlabjörgum í hádeginu á morgun. Allir velkomnir súpa í boði :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2013 | 15:19
15. nóvember!
Vá hvað tíminn flýgur! Kominn 15. nóvember og landsleikur í kvöld! Ekki það að ekki er fylgst mikið með fótbolta á mínu heimili en hvert sem ég hef farið í dag þá er fólk að spá í leik dagsins. Hvernig fer þetta. Ég er búin að leggja inn tölur í veðmál um úrslit leiksins. Tippaði á 1-1 heyrði það nefnilega í útvarpinu í morgun að það væri ekki alveg út úr kú!!!
Ró yfir Ráðhúsinu í dag. Lokaundirbúningur fyrir bæjarráð á mánudag sem byrjar óvenju snemma þar sem forstöðumenn stofnanna sveitarfélagsins munu hitta bæjarráð. Árlegt samtal bæjarráðs og forstöðumanna í tengslum við fjárhagsáætlunagerð.
Næsta vika bíður svo með fleiri spennandi verkefnum s.s. fundi á vegum Landsverndar, íbúafundum um fjárhagsáætlun, matarboði á HSSA og mörgu öðru skemmtilegu :)
Góða helgi!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2013 | 21:44
Hornafjarðarfljót o.fl.
Fékk mjög ánægjulegar fréttir í morgun frá Vegagerðinni. En þeir eru að vinna að skoðun á landinu þar sem nýtt vegstæði yfir Hornafjarðarfljót mun liggja. Athuganir í gangi á landinu til undirbúnings framkvæmda. Þessi framkvæmd er stór og flókin og vinna þarf góðan undirbúning en mér finnst það frábært og góðs viti að undirbúningur er í gangi :)
Annars komið víða við í dag. Fundað um framkvæmdir við fyrstu hæð í Ekrunni, málefni Menningamiðstöðvar Hornafjarðar, rætt um skapandi greinar og tómstundastarf. Erum að skoða ný skkref í rafrænni stjórnsýslu, tölvumál og ýmsann annan stofnbúnað.
Lauk svo vinnudeginum á fundi með Hafnarstjórn. Rætt um framkvæmdir og fjárhagsáætlun afgreidd meðal annars.
En toppur dagsins var frétt frá formanni Umhverfis og skipulagsnefndar á www.hornafjordur.is þar sem hann tilkynnir okkur íbúum um tafir á losun endurvinnslutunnu. Fannst hún svo mjög skemmtileg að það er langt síðan ég hef hlegið svona mikið :)
Takk fyrir mig í dag!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2013 | 21:04
Hreindýr!!
Í dag skrifar Grétar Már Þorkelsson góða yfirlitsgrein á hornafjordur.is þar sem hann fer yfir mál sem kom upp fyrr í haust við Flatey á Mýrum þar sem dýraverndunarsinnar fóru um og rifu upp girðingar. Gétar fer yfir atburðarrásina og hvet ég fólk til að lesa greinina og kynna sér þar þá hlið sem snýr að bændum og það sem þeir búa við!
Annars góður dagur í dag að vanda. Er betur inní málefnum hafnarinnar, veitnanna, áhaldahúss, matarsmiðjunnar og óskum forstöðumanna um stofnbúnað en ég var í gær :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2013 | 20:25
Hornafjarðarhöfn - stefnumótun
Góður vinnufundur í stefnumótun fyrir Hornafjarðarhöfn var haldinn núna seinnipartinn.
Til verksins mættu fjörutíu einstaklingar sem skiluðu miklu magni af hugmyndum og gögnum til hafnarstjórnarfólks sem kemur til með að vinna áfram úr gögnunum. Ekki hefur áður verið unnin stefnumótun fyrir höfnina og frábært hve margir sáu sér fært að mæta.
Í mínum huga stendur það helst uppúr vinnunni á mínu borði að við höfum góða og trausta innviði, tækifærin eru mörg en stærsta ógnin er innsiglingin við Hornafjarðarós. Rannsóknir eru í gangi á stöðunni þar og verið að huga að því hvað hægt sé að gera til að tryggja innsiglinguna en tíminn vinnur ekki með okkur hér!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2013 | 21:04
Þjóðlendumál
Bæjarráð fundaði í dag að venju. Eitt af því sem var á dagskrá þar voru þjóðlendumál. Bæjarráð samþykkti erindisbréf nefndar semmun móta stefnu um nýtingu þjóðlenda í Sveitarfélaginu og móta verklagsreglur um leyfisveitingar fyrir nýtingu þeirra. Lögfræðingur sveitarfélagsins mun leiða þá vinnu og mun fljótlega kalla eftir tilnefningum í nefndina samkvæmt erindisbréfinu.
Einnig kom inná borð bæjarráðs ábending um efnistöku á Breiðarmerkursandi sem er að sjálfsögðu bönnuð án tilskilinna leyfa!!
Forstöðumenn funduðu líka í morgun. Þar var fjárhagsáætlunargerð rædd út frá ýmsum þáttum.
Lauk deginum svo í Sundlaug Hafnar með fjölskyldunni. Mikið fjör þar í kvöld. Sundæfing í gangi, unglingar að ærslast en gott að slaka á í pottinum og mýkja vöðvana :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2013 | 21:19
Föstudagur
Byrjaði daginn hjá Einari Smára sjúkraþjálfa sem er að reyna að liðka á mér öxlina eftir aðgerð sem ég fór í fyrir rúmum tvem vikum.. Aðeins að bíta í skottið á kellu að nenna ómögulega að taka sér einhverja daga í veikindafrí!!! En hvað um það, allt að koma :)
Er mun fróðari en áður um jarðhitaleit og varmadælur eftir fund með Ómari Bjarka Smárasyni jarðfræðingi í morgun. En hann verður einmitt með erindi á ráðstefnu um málefni dreifbýlisis sem verður í Mánagarði 25. nóvember n.k.
Bæjarráð undirbúið í dag ýmislegt fleira spennandi.
Foreldrafundur með unganum mínum á milli atriða :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2013 | 20:56
Bæjarstjórnarfundur
Í dag var Fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 afgreidd til seinni umræðu hjá bæjarstjórn og 3ja ára áætlun líka. Nú fer vinna af stað við að fara nánar ofan í málaflokka stofnanna sveitarfélagsins með forstöðumönnum og frekari úrvinnsla á áætlununum.
Búnaðarstefna sveitarfélagsins var samþykkt í dag auk Safnastefnu og Stofnskrár Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Eitt og annað kom upp í umræðunni eins og t.d. hvort að Menningarmiðstöð Hornafjarðar eigi ekki með réttu að heita í dag Hornafjarðarsöfn!
Skipulagsmál voru líka á dagskrá. Breyting á aðalskipulagi, deiliskipulag og grenndarkynning.. Allt má þetta finna inná heimasíðu sveitarfélagsins.
Eitthvað er tæknin greinilega að stríða okkur því að með réttu ætti að vera útsending af fundinum í gangi núna á Skjávarpinu en svo er ekki. Skoða það mál í fyrramálið!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)