Náttúrustofa Suðausturlands!

Átti góðan fund í morgun með Kristínu Hermannsdóttur forstöðumanni Náttúrustofu Suðausturlands. Fórum yfir hvernig Náttúrustofa og Sveitarfélagið geta unnið saman að góðum verkefnum.

Náttúrustofna er mikill styrkur fyrir samfélagið hér og flott verkefni sem unnið er að svo sem Náttúrustígurinn sem er í vinnslu og mun fræða bæði okkur íbúana og ferðafólk sem sækir okkur heim.


Nú er frost á fróni!

Já nú er frost á fróni og jólin nálgast með miklum hraða! Jólahátíðin í "Plássinu" tókust mjög vel á sunnudaginn 1. des sl. Allavega heyrir maður ánægjuraddir úr öllum áttum. Undirbúningashópurinn á kærar þakkir skildar fyrir þetta framtak! Næsta laugardag verður markaðurinn í Miðbæ, Nýheimum og þar á milli. Spennandi að sjá hvaða veður okkur verður boðið uppá þann dag!

Í dag var kynningarfundur um nýtt deiliskipulag í frístundabyggðinni í Stafafellsfjöllum kynnt í ráðhúsinu. Góð mæting var á fundinn og án efa komið fram góðar ábendingar.


Ungir og aldnir á Hornafirði í dag!

Ávarpaði flottan hóp drengja og stúlkna í 3. flokki Sindra auk foreldra þeirra í kvöld en þau skrifuðu undir afrekssamning við Knattspyrnudeild Sindra við það tilefni. Einnig voru félagar úr 2. flokki og fleiri Sindramenn viðstaddir. Afrekssamningurinn er forvarnaplagg þar sem krakkarnir taka meðal annars afstöðu gegn áfengi, tóbaki og öðrum fíkniefnum. Krafist er líka góðrar ástundunar, boðið uppá auka æfingar, fræðslu og fleira. Rúsínan í pylsuendanum er svo keppnisferð næsta sumar til Spánar!!

Til hamingju með afrekssamninginn 3. flokkar og Knattspyrnudeild Sindra!

Frábært að hvetja þau til heilsusamlegs lífernis í gegnum íþróttaiðkunina. Ég talaði við þau á milli frækinna fótboltakappa. Óli Stefán yfirþjálfari hóf leikinn og svo kom Auðunn Helgason á eftir mér og fór yfir sinn feril og hvatti þau til dáða með leiðbeiningum sem þau munu pottþétt nýta til að ná fram góðum árangri. Ekki slæmur félagsskapur þar!

Fyrr í dag heimsótti ég svo opið hús í dagdvöl aldraðra í Ekrunni. Þar gæddi ég mér á kakó og vöfflu. Keypti vettlinga á basarnum og prjónaðar borðtuskur. Fullur salur af hressum eldriborgurum og gestum. Flott framtak að bjóða í heimsókn og safna í ferðasjóð í leiðinni. Takk fyrir mig!


Hvernig líkar þér svo nýja starfið?

Þetta er spurning sem að ég heyri mjög oft þessa dagana og mér finnst mjög vænt um eins og allar hamingjuóskirnar sem ég hef fengið. Ég upplifi þessa spurningu sem hvatningu því oft fylgir í kjölfarið að viðkomandi hafi trú á mér í starfinu. Það er nefnilega kjarni málsins það er svo gott að finna stuðning og oft fólks sem ég þekki ekkert persónulega en er samferðafólk sem lætur sig málin varða og gefur af sér. Aumingja þeir sem búa á stærri stöðum þar sem fólk er ekkert að hvetja hvort annað.

Er þetta eins og ég átti von á? Já en margfaldað með svona 3-4. Vissi að málin væri fjölbreytt og áhugaverð. Stóru línurnar nokkuð klárar, erill og massi af mannlegum samskiptum. En það er svoldið eins og starfið sem ég fékk leyfi úr til að sinna bæjarstjórastöðunni. Mannleg samskipti, erill maður veit aldrei alveg hvað dagurinn ber í skauti sér. Óvæntar uppákomur er erindið brátt eða ekki? Við erum öll ósköp mikið eins oft sömu verkefnin eða mjög lík í stjórnsýslu og heilbrigðisþjónustunni!!!

Svarið við spurningunni er, mér líkar það vel. Tel það forréttindi að fá að prófa svona starf en sakna nú svolítið HSSA, heimilisfólks og samstarfsmanna, verð nú að viðurkenna það! 


Ferðaþjónusta í Ríki Vatnajökuls

Í dag kom stjórn Ríkis Vatnajökuls ásamt starfsmönnum á fund bæjarráðs og ræddu stöðu mála hjá þeim. Rætt var samstarf sveitarfélagsins og klasans hingað til og svo um framtíðina. Gott hljóð í fólki almennt, verkefnin næg framundan enda ferðaþjónustan í miklum og örum vexti.

 


Fimmtudagur

Fundur vegna styrkúthlutunar Vaxtarsamnings Suðurlands í dag á Selfossi. Farið yfir tillögur að styrkveitungum frá VSS og SASS. Mörg flott verkefni sem fá úthlutað og önnur ekki á dagskrá núna eða vísað í annan farveg eins og gengur og gerist!

Ýmis mál unnin á heimleiðinni í gegnum síma, að sjálfsögðu með handfrjálsum búnaði :)

Hulstaði af áhuga á Rás 2. Viðhafnarþáttur um Vinsældarlista Rásar 2 - hringdi nú nokkrum sinnum í hann hérna í denn og kaus auðvitað Ferju þar inn á sínum tíma líka.


Fráveita!

Eitt af stóru málunum í dag voru fráveitumál. Fengum heimsókn frá ráðgjafa sem fór með okkar fólki yfir þau plön sem verið er að gera um framkvæmdir við fráveitu á Hornafirði. Það var fróðlegt að fara yfir þessi mál og náði ég aðeins hluta af þeim umræðum og pælingum sem eru í gangi vegna annarra anna.

Hitti marga aðra í dag s.s. formann stjórnar Ríkis Vatnajökuls sem vill svo skemmtilega til að er Hjalti Þór Vignisson forveri minn í starfi og nýráðinn framkvæmdastjóra Árdísi Ernu Halldórsdóttur.

Við Ragnhildur Jónsdóttir fórum yfir málefni Þekkingarsetursins Nýheima.

Þetta er hluti af þeim málum sem ég var að vinna að í dag en svo ég endi á byrjun dagsins - sjúkraþjálfun - öxlin öll að koma til og svo formlegur fundur JÓLASAMVERU NEFNDARINNAR!!


26.11.2013

Fjölbreytt verkefni í dag. Fræddist um Zink á stálþil sem fyrirbyggjandi meðferð við ryði og eyðingu stálsins í höfnum. Mjög fræðandi og spennandi kostur.

Sat með Umhverfis- og skipulagsnefnd hluta af fundi þar sem rætt var um aðalskipulagið sem er í endurskoðun og verður brátt tilbúið til auglýsingar.

Bæjarráðsfundur sem halda átti í gær var fluttur til dagsins í dag vegna ráðstefnunnar sem var í gær. Byrjuðum fyrr en venjulega til að hitta forstöðumenn og fara yfir málefni þeirra málaflokks. Haldið var áfram umræðu um fjárhagsáætlun og var gjaldskrá Skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar til umræðu í dag og samþykkt án athugasemda enda ekki lagðar til hækkanir umfram vísitöluhækkanir sem áður hafa verið tengdar gjaldskrám og reiknast  í byrjun hvers skólaárs. Einnig kom fram að ekki er þörf á hækkun fæðisgjalda í leik- og grunnskóla sem er mjög gott.

 


Ráðstefna um málefni dreifbýlisins!

Góð ráðstefna í dag um málefni dreifbýlisins hér í Sveitarfélaginu Hornafirði. Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðar og umhverfisráðherra mætti og setti ráðstefnuna. Mörg góð erindi um málefni sem snerta bændur og aðra íbúa dreifbýlisins. Raforka, jarðhiti ágangur álfta og gæsa, landgæði, Vatnajökulsþjóðgarður, loftslagsbreytingar, tækifærin í framtíðinni og fleira!!

Síðast en ekki síst góð mæting og frábær kjötsúpa hjá kvenfélaginu Vöku og svo dýrindis veitingar í kaffihléinu. Takk fyrir mig :)


Fimmtudagur!

Fínn fundur á Hótel Höfn í hádeginu í dag um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Góð mæting og vil ég þakka fyrir það.

Annars fór dagurinn í ýmis mál svo sem starfsmannafund, tölvumál, skólamál og svo fékk ég heimsókn frá endurskoðendum sveitarfélagsins hjá KPMG.

Á morgun hefst svo miðstjórnarfundur Framsóknar á Selfossi og á mánudag er ráðstefna um málefni dreifbýlisins í Mánagarði. Sjáumst þar!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband