Gagnaöflun og eftirfylgd ýmisa verkefna

Drjúgur tími dagsins hefur farið í gagnaöflun varðandi mál sem eru í vinnslu og eftirfylgd ýmisa verkefna. Þar má nefna sem dæmi framhaldsfræðslu og erindi til innanríkisráðherra.

Félagsfundur hjá Framsóknarfélagi Austur Skaftfellinga seinnipartinn í dag þar sem rætt var um fyrirkomulag við val á lista hjá félaginu í aðdraganda kosninganna í vor.


Teymisvinna og útsvar

Byrjaði daginn á hugarflugsfundi með velferðarteyminu. Margar góðar hugmyndir í gangi er varða málefni sem heyra undir teymið. Sat svo fund með tækni- og skipulagsteymi. Fengum kynningu á verkbeiðnakerfi sem mönnum líst vel á og verður skoðað betur. Rætt um framkvæmdir, fráveitu og sorpmál svo eitthvað sé nefnt.

Velti einnig fyrir mér fréttaflutningi sem ég sá í einhverjum netmiðlinum um breytingar á útsvarsprósentum hjá sveitarfélögum. Þar er talað um að hjá mörgum sveitarfélögum hafi verið samþykkt hækkun útsvarsprósentu en ekki farið nánar út í forsendur fyrir því. Því langar mig að endurtaka hér það sem kemur fram í fundargerð bæði bæjarráðs og bæjarstjórnar um málið. Þetta er nú ekki orðrétt en samþykkt var hækkun útsvars um 0.04% úr 14,48% í 14,52% með fyrirvara um að frumvarp um breytingar á lögum nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga verði samþykkt á alþingi. Gert er ráð fyrir að álagningarhlutfall tekjuskatts lækki um samsvarandi hlutfall þannig að ekki verður um heildarhækkun tekjuskatts og útsvars að ræða. Þannig að hinn almenni skattborgari mun ekki finna fyrir þessum breytingum nái þær fram að ganga.

Breytingarnar tengjast tilfærslu þjónustu við fatlað fólk og rennur hækkunin beint til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem útdeilir tekjum vegna málaflokksins til þjónustusvæð.

Þannig er það nú bara.


Mánudagur

Nýtt ár og ný vika. Náði að hnýta nokkra lausa enda í dag sem er alltaf mjög gott.

Bæjarráð kom saman í dag það var stuttur fundur en ánægjulegur þar sem fjallað var um bréf frá Vegagerðini þar sem tilkynnt er um undirbúningsvinnu vegna veglagningarinnar um Hornafjarðarfljót. Mjög ánægjulegt að sú vinna sé hafin þá fer að glitta í framkvæmdir þar í næstu framtíð. 

Einnig var til kynningar bréf frá forsætisráðuneytinu þar sem tilkynnt er um 15 milljón króna styrk til utanhúsframkvæmda við Miklagarð. Styrkir það þau áform sem að framundan eru hjá Menningarmiðstöðinni um safnastarf í Miklagarði.

 


Rólegheit.

Það var rólegt í vinnunni í dag og bara mjög notalegt. Tók langt hádegihlé og skrapp í sund með krökkunum.

Hafði tíma til að skoða nokkur mál betur sem að erill undanfarinna vikna hafði ýtt til hliðar. 

Frí hjá bæjarráði n.k. mánudag en allt á fullt mánudaginn  6. janúar 2014!!


ONE

Dagskrá föstudagsins breyttist snarlega þegar starfsmaður frá ONE system skjalastjórnunarkerfinu birtist óvænt á Höfn til að vera með námskeið! Smá misskilningur varð til þess að rugla dagsetningum en hvað um það maðurinn mættur og ekki flug aftur til Reykjavíkur fyrr en seinnipartinn svo að þeir sem tiltækir voru voru kallaðir inn á námskeið og önnur verkefni sett til hliðar.

Lærði margt og mikið sem er frábært. Stundum er þetta bara svona en niðurstaðan er góð.

Góða helgiHappy og góðan jólaundirbúning!


Fráveita - löggæsla - bæjarráð

Gerðist jólasveinn í stutta stund í morgun er ég færði samstarfsfólki í ráðhúsinu jólagjöfina í ár! Alltaf gaman að gefa og klæðast rauðri húfu.

Sat svo hluta af fundi um fráveitumál sem Helga Hreinsdóttir frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands og Einar frá VSÓ ráðgjöf  áttu með sérfræðingunum okkar hér heima. Farið verður í fráveituaðgerðir næsta vor hér á Höfn og í Nesjum og gott að undirbúa vel finna bestu og hagkvæmustu leiðirnar.

Kynnti mér málefni lögreglunnar á Höfn. Fékk leiðsögn tveggja lögreglumanna um stöðina og áttum við mjög gott spjall.

Undirbjó svo bæjarráðsfund næstu viku en fundurinn verður á óhefðbundnum tíma svo að bæjarráðsfólk þurfi ekki að eyða þorláksmessukvöldi í fundarhöld. Byrjum snemma svo að allir komist í skötu í hádeginu!! Allavega ég Wink held að þau kunni ekki öll gott að meta!


Nýheimar og heilbrigðisþjónustan

Sat fund með stjórn Nýheima í morgun. Þar er mikil gerjun í gangi. Öflugar stofnanir Nýheima sinna verkefnum sem skarast og styðja hvor aðra. Þar var framhaldsfræðslan að sjálfsögðu til umræðu en tímamót eru núna um áramót þegar Austurbrú kveður og inn koma fræðsluaðilar af suðurlandi. Háskólafélag Suðurlands og Fræðslunet Suðurlands. Einnig fékk ég góðar upplýsingar um annað sem brennur á aðilum Nýheima.

En bestu fréttir dagsins voru þær að heilbrigðisráðherra hefur frestað sameiningum heilbrigðisstofnanna á landsbyggðinni fram á haust! Mun þá gefast betri tími til samráðs (einhvers samráðs vonandi) og undirbúnings sem ekki veitir af.


Þriðjudagur

Hóf daginn á fundi með Velferðarteymi sveitarfélagsins. Fórum hlutverk teymisins og þau verkefni sem þau eru að vinna að.

Mörg málefni sem unnið var að í dag. Birgir Árna kom til mín og við ræddum um áhaldahúsið verkefni og framkvæmdir sem er verið að undirbúa þar. Símafundur vegna fræðslumála, ferðaþjónusta, endurskoðun og ýmislegt fleira.

Hafnarstjórn fundaði svo í lok dags. Þar var umræða um stefnumótun veigamest enda vinna sem skal standa til sex ára og gott að fara vel yfir málin.


Mánudagur 16. des

Jæja, nokkrir dagar frá síðustu skrifum ástæðan er ekki verkefnaskortur frekar tímaskortur!

Fimmtudaginn 12. des var fjárhagsáætlun næsta árs samþykkt í bæjarstjórn. Einnig var mikið af skipulagsmálum á dagskrá sem vísað var áfram í ferli eða samþykkt.

Það eru ákveðin tímamót eftir desember fundinn og þá hefur verið til siðs að bæjarstjórn borði saman. Í þetta skiptið var borðað á Kaffihorninu varabæjarfulltrúum og mökum var boðið með. Að auki var starfsmönnum nefnda boðið með að þessu sinni og þeirra mökum. Tilefnið var að þakka fyrir gott samstarf á kjörtímabilinu sem rennur sitt skeið í vor.

Föstudagurinn þrettándi var góður dagur nóg að gera og engin óhöpp!!

Í dag var farið yfir þau mál sem lögfræðingar sveitarfélagsins eru að vinna að fyrir okkur. Einnig var fyrsti fundur vinnuhóps um þjóðlendumál og leggst sú vinna vel í mig. Hópurinn fjallar um hvernig farið skuli með leyfisveitingar í þjóðlendum innan sveitarfélagsins og er sú vinna unnin í samvinnu við forsætisráðuneytið sem fer með þjóðlendumál.

Ég rétt náði að kasta kveðju á fulltrúa Austurbrúar sem voru hér í dag og síðan var bæjarráðsfundur. Þar voru skipulagsmál á dagskrá ásamt ýmsum samningum sem að sveitarfélagið stendur að.


Aðventa á miklum hraða!

Tíminn líður hratt þessa dagana eins og vill verða þegar mikið er um að vera.

Á morgun verður bæjarstjórnarfundur þar sem stendur til að samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árið 2014. Eins og gefur að skilja hafa síðustu vikur verið undirbúningur fyrir þann fund. Passa þarf að hnýta alla lausa enda og ganga frá fjárhagsáætluninni eins nákvæmlega og hægt er svo að ekki þurfi að koma til breytinga eða sem minnstra á komandi ári. 

Á þriðjudag sat ég fund með tækniteymi bæjarins þar sem farið var yfir framkvæmdaáætlanir næsta árs meðal annars. Á þeim fundi var mikið rætt um bílastæðamál á og við höfnina sem við verðum að huga að áður en ferðamannastraumurinn fer að þyngjast í vor.

Einnig fengum við ábendingu um að þörf sé á framkvæmdum í húsnæði fyrir eldri borgara eins og Búmenn hafa verið að byggja upp. Og getur allt eins verið að við förum í að kanna þörfina betur til að sjá hvort raunhæft sé að hvetja Búmenn og byggingarverktaka til að fara í uppbyggingu.

Deginum í dag eyddi ég í Reykjavík. Sat fund með fullrtúa endurskoðenda sveitarfélagisns og í Mennta- og menningarmálaráðuneytinu með fræðslustjóranum þar sem framhaldsfræðsla og Nýheimar ses voru umtalsefni.

En aðventan er í fullum gangi þannig að núna ætla ég að setja jóladisk í spilarann kveikja á kerti og pakka inn einni eða tvem jólagjöfum Smile njótið líka.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband