24.1.2014 | 20:16
Góðir hlutir að gerast!
Alltaf gott þegar verða kaflaskil. Hitti Ragnhildi Jóns dóttur á flugvellinum áðan. Hún var að koma að sunnan og með uppáskrifaðan samning um Þekkingarsetrið Nýheima í töskunni.
Framhaldsfræðslan fer nú að rúlla af stað þar sem stjórn Fræðslunet Suðurlands hefur formlega samþykkt Hornfirðinga inn hjá sér.
Ýmsir fleiri lausir endar hnýttir í dag. Bæjarráð mánudagsins undirbúið þar sem ég verð ekki heima á mánudag. Ætla að vera með erindi í hádegisverðarfundinum "Konur til forystu" á Hallveigarstöðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2014 | 17:49
Ný aðveitustöð Rarik á Höfn tekin formlega í notkun!
Stór dagur í dag þegar ný aðveitustöð Rarik á Höfn var tekin formlega í notkun og nýr útgangur Landsnets í aðveitustöð á Hólum. Þetta er stór áfangi sem eykur afhendingargetu og afhendingaröryggi á svæðinu.
Ég fékk þann heiður að fá að ræsa stöðina með því að hleypa spennu inná rafskautsketil fiskimjölsverksmiðju Skinneyjar-Þinganess. Hlýt að fá stjörnu í kladdann hjá raf/tengdafjölskyldunni og Gísla bróður fyrir það :)
Þetta er ekki bara stór dagur hvað varða rafmagnsmál heldur er það mikil umhverfisbylting að fiskimjölsverksmiðjan færi sig frá notkun olíu yfir í raforku.
Í tilefni dagsins stytti upp og sólin skein. Hornafjörður og nágrenni skartaði sínu fegursta. Hve lengi skyldi það endast?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2014 | 17:42
miðvikudagur
Fórum yfir ýmis mál í morgun er varða fráveitu og sorpmál með Birgi Árna og Björgvini. Mikil verðmæti í hvoru tveggja.
Átti svo góðan fund með Þorvarði Árnasyni og Sæunni Stefánsdóttur nýjum forstöðumanni Stofnunnar rannsóknarsetra HÍ. Fórum þar mjög vel yfir Rannsóknarsetur HÍ á Höfn og hver stefna HÍ er í málefnum setranna. Ræddum um samvinnu sveitarfélagsins og rannsóknarsetursins og þau fjölmörgu tækifæri sem eru til staðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2014 | 21:33
mánudagur og þriðjudagur!
Þéttir dagar og feiki nóg að gera! Hyllir í að skrifað verði undir samninga við Menntamálaráðuneytið varðandi framhaldsfræðslu og Þekkingarsetrið Nýheima skref fyrir skref nálgumst við það takmark.
Fengum kynningu á Motus og Pacta í dag. Motus sér um innheimtumál fyrir fjölmörg sveitarfélög og var að kynna þjónustu sína eins og þeir hafa gert áður. Alltaf spurning hvort að það sé einhver akkur fyrir sveitarfélagið að úthýsa verkefnum! Pacta er lögfræðistofa sem tengist Motus en hér á Hornafirði eru staðsettar tvær ágætar lögmannsstofur þannig að við erum vel sett þar.
Skipulagsmál líka til umræðu sem fyrr er að mörgu að hyggja þar. Tvö einstaklega skemmtileg símtöl sem geta gefið mér tækifæri til að láta ljós mitt skína skært!! Skyldi vera eitthvað grín í gangi?
Lauk vinnudeginum á fyrirlestri um mannauðsstjórnun, stefnumótun og starfsgreiningu!
Þá hófst fjölskyldudagurinn í samveru með börnum, tengdadóttur, ömmugullinu, mömmu og pabba :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2014 | 23:09
Skóli!!
Sat á skólabekk í dag með forstöðumönnum og öðrum stjórnendum hjá sveitarfélaginu í allan dag. Læddist í símann og tölvupóst inn á milli erinda og í pásum!!
Fékk yndislega kjötsúpu hjá Kvenfélagskonum í Nesjum - takk fyrir mig!
Ætla að bruna í höfuðborgina á morgun á athöfn í HR þar sem fjórir nemendur úr Grunnskólanum í Hofgarði eru tilnefndir til verðlauna í skóla samkeppni Landsbyggðarvina fyrir bestu hugmyndirnar í verkefninu betrri framtíð í heimabyggð. Hlakka til!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2014 | 17:56
Mannauður
Ekki þarf að fjölyrða um gildi mannauðs stofnanna og fyrirtækja. Mikil fræði eru til um hvernig best sé hlúð að mannauðnum og hófst Stjórnendanám sveitarfélagsins fyrir forstöðumenn og aðrir stjórnendur sveitarfélagsins einmitt á því efni í dag. Stjórnendaskólinn er frá Háskólanum á Bifröst og komu tveir kennarar þaðan til að vera með okkur í dag og á morgun. En þunginn af náminu verður í gegnum fjarnám. Byrjunin lofar góðu :)
Góðar fréttir úr Innanríkisráðuneytinu í dag. En til stendur að fjölga lögreglumönnum á landinu og horfa á sérstaklega til landsbyggðarinnar. Þá er von mín að sveitarfélagið Hornafjörður muni njóta þessarar eflingar. Ég á von á að fá fund fljótlega með innanríkisráðherra þar sem þessi mál verða til umræðu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2014 | 19:49
Nýheimar og þjóðlendumál!
Góður fjarfundur í morgun þar sem Þekkingarsetrið Nýheimar var aðalumfjöllunarefnið. Þáttakendur hér heima voru fulltrúar stofnananna og félaga sem hafa starfsemi í Nýheimum, fulltrúar frá Kirkjubæjarklaustri, Eygló sveitarstjóri og Ólafía hjá Kirkjubæjarstofu, Árni Rúnar félagi okkar á Vík í Mýrdal og á Selfossi sátu fulltrúar Fræðslunetsins, Hákólafélagsins og Þórarinn frá Mennta- og Menningarmálaráðuneytinu. Ágætis fundur um framtíðaráætlanir og samstarf sem er að bresta á.
Þjóðlendunefndin kom aftur saman í dag og voru fulltrúar frá Forsætisráðuneytinu með okkur í síma. Vinna hópsins gengur mjög vel og er á áætlun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2014 | 16:44
Skipulagsmál og fl.
Byrjaði daginn á fundi með stjórnsýslu- og fjármálateymi. Góður fundur þar sem var farið yfir þau mál sem eru efst á baugi og það sem er framundan.
Fór svo yfir skipulagsmálin með Rúnari og Bryndísi. Erum með mörg mál í gangi þessa stundina. Nauðsynlegt er að halda vel í alla þræði þar og gengur það bara vel. Í dag eru til kynningar tillögur að deiliskipulögum við HSSA út að Júllatúni fyrir neðan Víkurbraut, hafnarsvæði við Krosseyjarveg og endurskoðun á aðalskipulagi. Þessar tillögur eru hægt að kynna sér á vef sveitarfélagsins og í andyri ráðhúss og hvet ég fólk til að koma við skoða þær og gera athugasemdir ef þurfa þykir.
Einnig fjölluðum við um umhverfismálin og þau verkefni sem verið er að vinna að þar.
Morgundagurinn verður svo að mestu helgaður fræðslu- og þjóðlendumálum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2014 | 20:31
Endurskoðun
Fór yfir punkta frá endurskoðendunum hjá KPMG í dag. Eitt og annað sem þarf að huga að til að allir endar séu frágengir núna þegar farið er að undirbúa ársreikning sveitarfélagsins.
Endurskoðaði sjálf punktana mína frá síðustu fundum bæjarráðs. Fann nokkra lausa enda sem þarf að ganga frá, náði nokkrum en aðrir í vinnslu eins og þar stendur. Tíminn svo ótrúlega fljótur að líða þannig að það er eins gott að vera með góða punkta því að minnið er ekki alveg 100%.
En það var alsæl amma sem ég hitti í morgun, Ásta og Guðjón fengu ömmustelpu í gærkvöldið. Til hamingju með það!! Þannig að stelpurnar áttu 9. jan í ráðhúsinu :)
Gott að koma heim og hitta grislingana mína eftir vinnu. Fyrsta vikan eftir jólafrí löng og ströng en þau fá reyndar 3ja daga helgarfrí þar sem það er skipulagsdagur í skólanum á mánudag!
Góða helgi gott fólk, hafið það sem allra best í fríi eða vinnu!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2014 | 20:24
9. janúar
Undirbúningur að framkvæmdum í Sindrabæ er hafinn. Fundur í dag þar sem lagðar voru línur fyrir hönnuði. Ferli svona framkvæmda hefst löngu áður en verktakar mæta í hús og byrja að vinna. Hugsa þarf fyrir öllum þáttum í hönnunarferlinu til að allt gangi smurt þegar að framkvæmdinni kemur!
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 og þriggja ára áætlun 2015-2017 fór á heimasíðu sveitarfélagsins í dag. Ég hvet fólk til að kynna sér hana.
Átti góðan fund með Árdísi Ernu framkvæmdastjóra Ríki Vatnajökuls (RV) í dag og Hauki Inga hagsýslu- og innkaupastjóra þar sem við fórum um víðan völl yfir ferðaþjónustumálin í sveitarfélaginu, gildi RV fyrir sveitarfélagið og hvernig við getum eflt sveitarfélagið og klasann með aukinni samvinnu á ýmsum sviðum.
Svo var skemmtileg spenna í loftinu þar sem tveir starfsmenn áttu von á barnabarni (sitt hvoru!) í dag! Ein dama komin í heiminn í lok vinnudags - til hamingju Bjössi og Hafdís og auðvitað foreldrarnir Nanna Halldóra og Frikki! Svo verður Ásta öruggleg líka orðin amma á morgun :) Hlakka til að mæta í vinnuna á morgun og fá fréttir af því!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)