Mánudagur

Bæjarráð kom saman kl 16 í dag að vanda, þar var mikið um skólamál á dagskrá.

Undirbúningur er í fullum gangi fyrir endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins og fór Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri yfir þá vinnu sem hefur farið í undirbúning og hvernig framvindan verður. Unnið er að útboðsgögnum fyrir skólamat frá næsta skólaári og ýmislegt fleira.

Í dag var síðasti dagur til að gera athugasemdir við deiliskipulag við HSSA og endurskoðun/ tillögu að aðalskipulagi sveitarfélagisns til 2030. Þær athugasemdir sem gerðar voru fara nú til umhverfis- og skipulagsnefndar þar sem unnið verður úr þeim með skipulagsráðgjöfum.

Einnig var stefnu Hornafjarðarhafnar vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.


7. febrúar

Dagurinn var mjög fjölbreyttur og skemmtilegur. Skrapp til Reykjavíkur og sat málþing um "Sveitarfélögin og málefni fatlaðs fólks" á Grand Hótel á milli þess sem ég skrapp á Íslensku Hamborgarafabrikkuna og tók þátt í tímamótaviðburði þar sem opinberaður var fyrsti ferkantaði hamborgarinn. Brauðið hjá þeim hefur verið ferkantað en nú er kjötið orðið það líka!!

Þetta var heljarinar viðburður og mjög gaman að fá þann heiður að taka þetta út sem bæjarstjóri HORNAfjarðar við undirleik hornleikara Simfóníuhljómsveitar Íslands og borða herlegheitin. Svo ljúfengt. Takk fyrir mig Simmi og Jói!

Flaug svo heim og fór svo til beint í afmælisveislu Slysavarnardeildarinnar Framtíðarinnar. Deildin var stofnuð 7. febrúar 1954 í barnaskólanum á staðnum og er því sextíu ára. Veislan var alveg einstaklega skemmtileg og fín og takk kærlega fyrir mig Framtíðarkonur!


Bæjarstjórn!

Fyrsti fundur bæjarstjórnar á árinu var í dag. Sjö fundargerðir bæjarráðs voru til umfjöllunar. Annað var ekki á dagskrá fundaris sem var nokkuð stuttur eða 40 mínútur.

Meðal þess sem rætt var má nefna styrkinn frá Minjastofnun til utanhússviðhalds og gluggaviðgerða á Miklagarði. Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar mun eiga fund vegna hans á morgun. Það verður gaman að heyra hvað kemur af þeim fundi, þá nánar um nýtingu styrksins.

Komið var inná þær framkvæmdir sem þarf að ráðast í á Suðurfjörum til að verja landið þar en það er hlutverk ríkisins og fer Vegagerðin með þessi mál. Ljóst er að við þurfum að vinna að því að fá þessar framkvæmdir af stað sem allra fyrst og passa að hugað sé að ökuleið með varnargarðinum út í Hvanney svo að aðgengi að Ósnum sé gott ef eitthvað kæmi uppá þar!

Lögreglumál. Bæjarstjórn er umhugað um að staðið verði við þau orð sem innanríkisráðherrar bæði núverandi og fyrrverandi hafa haft um að á Höfn verði staða aðalvarðstjóra. Eitthvað virðist tefja að það gangi eftir en við höldum áfram að gera það sem við getum til að svo verði. Þessa dagana er verið að kynna frumvörp til laga um fækkun sýslumanns- og lögreglustjóraembætta og þá stækkun umdæma þeirra sem efir verða. Bæjarstjórn / bæjarráð þarf að taka þá umræðu um hvort við teljum rétt að við tengjumst austur eða vestur ef frumvörpin verða samþykkt!

Það er að mörgu að hyggja margt annað var til umræðu en þetta er svona það sem kom uppí hugann akkúrat núna :)


Gestagangur!

Þessa vikuna er kjördæmavika á alþingi þar sem þingmenn gera víðreist um kjördæmi sitt hitta kjósendur og ræða það sem brennur á fólki. Það gefur okkur sem er í sveitarstjórn tækifæri á að ræða við þingmennina um þau mál sem á okkur brenna á heimavelli.

Í dag voru ráðherra og þingmenn Framsóknar í Suðurkjördæmi hér á Höfn Sigurður Ingi umhverfis- og auðlindaráðherra, Silja Dögg, Páll Jóhann og Haraldur. Á morgun verður þingmaður Bjartrar framtíðar Páll Valur á staðnum og Unnur Brá þingkona Sjálfstæðisflokksins á föstudag. Ég hvet íbúa til að nota tækifærið og ræða við þau um það sem á þeim brennur í landsmálunum.

 


Vikubyrjun!

Ekki verkefnaskortur nú frekar en fyrri daginn! Vikan hófst á forstöðumannafundi í gærmorgun þar sem ég vakti m.a. athygli á Umhverfisstefnu sveitarfélagsins rætt var um vinustaðargreiningu sem stendur til að leggja fyrir starfsmenn sveitarfélagsins í 3ja skiptið nú í vor en þrjú ár eru frá síðustu greiningu og margt fleira rætt.

Húsnæðismál hafa verið ofarlega á baugi bæði í gær og í dag. Skortur er á húsnæði í sveitarfélaginu, setið er um leiguhúsnæði og gjarnan vill umræðan leiðast út í vangaveltur um ferðaþjónustu og gististaði. 

Fundur með tækniteymi í morgun. Farið yfir framkvæmdir og önnur verkefni sem að fyrirliggjandi eru. Endurbætur í Ekrunni ganga vel og undirbúningur annarra framkvæmda einnig í góðum farvegi.

Fengum góða heimsókn Höskulds Þórhallssonar þingmanns í dag sem var á leið austur á land í fundarferð með félögum sínum í Norðaustur kjördæmi. Hann var veðurtepptur á leið sinni í gær vegna óveðurs á suðurlandi. Gaman og gagnlegt að fá Höskuld í kaffispjall um samgöngumál og vonandi hefur hann átt góða ferð og nóg að hugsa um á leið sinni áfram. 

Þingmenn kjördæmisins verða á ferðinni á morgun og á fimmtudag.  Allir velkomnir á súpufund hjá Framsóknar þingmönnum á Hótel Höfn í hádeginu á morgun.

Lauk vinnudeginum í dag á fundi Hafnarstjórnar. Nefndin afgreiddi m.a. frá sér stefnu Hornafjarðarhafnar til umræðu í bæjarráði og bæjarstjórn. Góð vinna sem þar hefur farið fram með aðkomu fjölmargra aðila. 


Föstudagurinn síðasti í janúar :)

Menntamál í morgunsárið, ferðaþjónusta í hádeginu og sorpurðunar mál þar á milli!

Atvinnumál, bæjarráð og menningarleg atvinnumál í lok vinnudags :)

Fjölbreyttur og ljómandi góður dagur - Góða helgi og takk fyrir janúar! 


Stefnumótun, endurbætur og innleiðing á 2ja tunnu kerfi í dreifbýli!

Fór yfir lokadrög stefnu Hornafjarðarhafnar sem lögð verður fyrir hafnarstjórn í næstu viku með forstöðumanni Hornafjarðarhafnar og Stefáni Ólafssyni í morgun.

Skellti mér svo í heimsókn til eldri borgara í dagdvölina í hádeginu. En þau eru í "útilegu" þessa dagana vegna endurbóta á húsnæði þeirra í Ekrunni. En það fer greinilega vel um þau í Slysavarnarhúsinu. 

Mátti svo til með að skella mér í mat á hjúkrunardeildina í hádeginu til að hitta samstarfsfólk mitt þar. Var bara farin að sakna þeirra svolítið, svo það er ekki annað að gera en að kíkja við :)

Eftir hádegi skellti ég mér á kynningarfund um innleiðingu á 2ja tunnu kerfi í dreifbýli í Mánagarði. Það var fjórði fundurinn sem haldinn er um málið. Í gær var farið í Öræfi og Suðursveit og byrjað á Mýrunum í morgun. Góðar umræður á fundinum um sorpmál, hirðingu og önnur umhverfismál.


Veraldarvefurinn og rafræn stjórnsýsla!

Í dag var sett í loftið facebook síða Sveitarfélagsins Hornafjarðar! Tilgangurinn með síðunni er að deila fréttum m.a. af vef sveitarfélagsins og gefa íbúum tækifæri á að koma með ábendingar og fyrirspurnir er varða sveitarfélagið.

Rafræn stjórnsýsla er eitt af því  sem stefnt er að því að efla á árinu. Íbúagátt verður tekin í notkun og er verið að taka í gagnið kerfi sem hjálpar starfsmönnum að vinna með íbúatölur og ýmsar upplýsingar sem tengjast þeim.

Með íbúagáttinni mun íbúum gefast tækifæri á því að senda umsóknir og ýmis erindi rafrænt til sveitarfélagsins og getur íbúinn svo fylgst með ferli umsóknarinnar í gegnum kerfið og fær rafrænt svar við umsókn/erindi.

Að sjálfsögðu verður áfram hægt að mæta á staðinn og nota hefðbundin pappírsform kjósi menn að gera það eftir að kerfið verður tekið í notkun. Tilgangurinn er að gera þjónustuna aðgengilegri fyrir þá sem vilja nýta rafræna afgreiðslu og spara tíma og peninga. 

Vefurinn er frábært fyrirbæri sem að getur gert okkur lífið léttara og einfaldað ýmislegt en hann er einnig vettvangur þar sem skelfilegir hlutir geta gerst. Ég hvet alla til að vera meðvitaðir um hvernig þeir nýta vefinn og muna í "commentum" athugasemdum á vefnum "Gullnu regluna" - Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra"  Höfum það í huga :)


Ferðamaðurinn!

Á þorrablóti Hornfirðinga sl. laugardag lék ferðamaðurinn sem heimsækir okkur stæðsta hlutverkið. Þetta var mjög flott hjá þorrablótsnefndinni og þemað mjög við hæfi þar sem talað hefur verið um gullgrafaraæði í sýslunni í tengslum við ferðaþjónustuna.

Ef marka má útfærslu nefndarinnar þá erum við öll til í að hnýta -INN við húsnúmerin okkar og leigja bólin til ferðafólks. Þetta var ýkt skemmtilegt en auðvitað svolítil kaldhæðni í því líka.

Þeir bæjarbúar sem ég hef heyrt mest í eru ósáttir við þá þróun að íbúðarhúsnæði sé tekið undir ferðaþjónustu. Erfitt er að fá leiguhúsnæði þar sem  eigendur vilja ekki binda íbúðir í langtímaleigu svo að hægt sé að leigja til ferðafólks yfir sumartímann. Þetta er ekki einsdæmi á Hornafirði heldur á þetta einnig við víða um land. Oft finnur maður pirring út í bæjaryfirvöld fyrir að stoppa þetta ekki en fólki er auðvitað í sjálfsvald sett hvernig það vill nýta sínar eignir sé það innan laga og reglna. 

Þeir sem selja út gistingu þurfa að hafa rekstarleyfi frá sýslumanni. Til að fá það þarf sveitarsjórn og heilbrigðiseftirlit að gefa umsögn. Leyfin geta ýmist verið hótel, gistiheimili, íbúðagisting eða heimagisting. Ákveðnar kröfur eru til hvers og eins leyfis og fer byggingar- og skipulagsfulltrúi yfir hvort óskin um leyfi  rúmist innan skipulags. Heilbrigðisfulltrúi kannar þá þætti sem að honum snúa og ef allt er innan laga og reglna er ekki gerð athugasemd við umsóknina og eignin fer í flokk atvinnuhúsnæðis gagnvart fasteignagjöldum.

Hér á Hornafirði erum við að fara yfir hvernig þetta ferli er og skoða þá eftirlitið sem kemur eftir að leyfi er gefið út. En það er mjög mikilvægt að reksturinn sé í takt við það leyfi sem veitt er. Sem dæmi að rekstaraðili sem er með leyfi fyrir íbúðagistingu sé ekki að leigja út stök herbergi! Eða ef rekin er heimagisitng þá á ekki að leigja eignina eða herbergi út án þess að heimilismaður sé á staðnum!

Þannig er það nú, vona að ég gleymi nú ekki neinu hér en ef svo er þá bæti ég úr því síðar.

Vildi bara láta ykkur vita af þeirri vinnu sem er í gangi og þakka fyrir góða skemmtun á þorrablóti :)


Konur í forystusæti!

Tók þátt í góðum fundi í dag í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum. Flutti þar eitt af þremur ávörpum en þær Arnbjörg Sveinsdóttir frá Seyðisfirði og Arna Lára Jónsdóttir frá Ísafirði fluttu líka ávörp. Umræðuefnið var staða kvenna í stjórnmálum á landsbyggðinni og var gaman að heyra hve konur eru öflugar í bæjarmálunum á Seyðisfirði og Ísafirði.

Auka þarf hlut kvenna í bæjarstjórn í Sveitarfélaginu Hornafirði. Við byrjuðum tvær sem aðalmenn 2010, síðan var ég ein eftir að Guðrún Ása fór í fæðingarorlof og hætti í kjölfar þess þangað til Guðrún Ingimundar kom inn fyrir Árna Rúnar í sumar. 

Kosningar í vor og þá höfum við tækifæri stelpur til að bæta í!!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband