25.2.2014 | 19:36
Vettvangsferð!
Fór með hafnarstjórn í vettvangsferð í dag til að skoða landbrot á Suðurfjörum. Fínasta ferð þó að ég hafi nú aldrei kunnað vel við mig um borð í bát eftir mikla sjóveikisferð frá Ísafirði í Hornvík.
En þetta var nú allt annað enda sparitúr innan fjarðar og ekki hægt að segja að mikil hreyfing hafi verið á Birni Lóðs! En hvað um það. Á næstu dögum verður hafist handa við bráðabirgðaaðgerðir vegna landbrots og fulltrúi Vegagerðarinnar og Vignir Júl sem voru með í för lýstu fyrir okkur hvernig hugsað er að varanlegar framkvæmdir verði en þær eru á áætlun ársins 2015 hjá Vegagerðinni sem fer með þessi mál.
Kíktum líka á Hellisvitann en hann mun verða snurfusaður í vor eða sumar. Útboðsgögn vegna þess máls eru að verða tilbúin. Ágætis ferð og upplýsandi fyrir mig svo ekki sé meira sagt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2014 | 19:36
Lífsins gæði!
Segja má að lífsins gæði hafi verið til umræðu í dag frá mörgum sjónarhornum.
Fjarskipti skipta okkur miklu máli í nútíma samfélagi og er unnið að því að bæta þau gæði í sveitarfélaginu. Háhraða nettengingar eru ekki sjálfsagður hlutur þó að stór hluti landsmanna búi við þau gæði þá er ennþá hluti íbúa sem nýtur þeirra ekki. Unnið er að því að bæta það í sveitarfélaginu og stefnt að því að þeir áfangar sem unnið er að núna verði klárir fyrir vorið.
Almannavarnanefnd ræddi öryggismál í hádeginu. Þau mál eru klárlega ein af þeim málum sem við viljum hafa í góðum farvegi. Helst viljum við alls ekki þurfa að reiða okkur á aðstoð í neyð en sú staða getur komið upp hjá okkur öllum.
Umhverfið okkar hefur mikið að segja um það hvernig okkur líður og í umhverfinu felast tækifæri jafnt og ógnanir. Allur skalinn hefur verið til umræðu í ráðhúsinu í dag.
En morgunkaffið í ráðhúsinu gaf ljúfan tón fyrir daginn þar sem karlpeningurinn hafði dekkað fallega borð fyrir okkur konurnar í tilefni konudagsins sem var í gær. Það var ekki bara fallegt hjá þeim og af þeim heldur ljúffengt og huggulegt. Takk fyrir það kæru samstarfsmenn :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2014 | 17:46
Framkvæmdir og list
Góður fundur í morgun um framkvæmdir í bænum. Búið er að ráðstafa ákveðnum upphæðum í götur, gangstéttir og opin svæði. Það er gert með ákveðna skoðun og grófa áætlun sem viðmið. Nú er hins vegar verið að vinna í endanlegum tillögum sem fara svo í endanlegt samþykktar ferli. Ýmislegt getur breyst á tímanum frá því áætlun er gerð þar til framkvæmd er endanlega sett í gang.
Eitt og annað hefur komið til skoðunar í dag en ég lauk deginum á opnun listsýningar í Svavarssafni. Sýningin er á verkum Guðrúnar Benediktu Elíasdóttur listakonu og kallar hún hana "Heimahöfn".
Góða helgi!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2014 | 17:19
Innanlandsflug
Vaknaði í morgun við þvott á svefnherbergisglugganum !! Þegar betur var að gáð var enginn úti á stétt að spúla gluggann, þetta var bara veðrið sem heilsaði svona ákaft í morgunsárið.
Eftir starfsmannafund í byrjun dags skellti ég mér inná vef innanríkisráðuneytisins og fylgdist með fundi í Iðnó um framtíð áætlunarflugs innanlands. Það var mjög athyglisverður fundur þar sem farið var yfir félagshagfræðilega greiningu á framtíð innanlandsflugs. Það sem mér finnst standa uppúr (náði ekki öllum fundinum) er að fargjöld eru alltof há þ.a.l. er nýting á fluginu ekki nógu góð eins og t.d. til Hornafjarðar. Þó ég hafi grun um að nýting hafi aukist undanfarið. En flug hingað mun seint standa undir sér fjárhagslega en er mjög mikilvægt út frá byggða- og öryggissjónarmiðum.
Það verður fróðlegt að fylgjast með árfamhaldandi vinnu í þessum málum sem vonandi skilar okkur því að innanlandsflug verði raunhæfur kostur sem ferðamáti. En þá tel ég að grunnurinn sé að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni!
P.s. ekkert flug í dag vegna veðurs!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2014 | 21:23
Leyfi
Ræddi rekstrarleyfi í dag á fundi með fulltrúa Heilbrigðis- og eldvarnareftirlits, skipulags- og byggingarfulltrúa og lögfræðingi sveitarfélagsins. Komum inná umsóknir og endurnýjanir á leyfum, mikilvægi þess að leiðbeina fólki í ferlinu og eftirlitsþáttinn. Hvernig skal bregðast við ef upp kemur að rekstur er ekki í samræmi við útgefið leyfi! Miklvægi þess að öryggisþættir séu uppfylltir samkvæmt kröfum sem gerðar eru til rekstus sem er leyfisskyldur.
Vorið nálgast og ferðamönnum fer að fjölga þannig að ég hvet þá sem eru í starfsemi sem snýr að þeim að kanna hvernig leyfismál standa og ef breyting hefur orðið eða verður á starfseminni þá getur þurft að gera ráðstafanir vegna þess.
Víða er einnig farið að huga að öðrum leyfum þ.e. sumarleyfum og jólin rétt af staðin, vá hvað tíminn líður hratt!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2014 | 19:36
Ungmennaráð
Fengum góða heimsókn frá Ungmennaráði á fund bæjarráðs í gær. Þau komu í fylgd með Vilhjálmi Magnússyni starfsmanni Vöruhússins. Það var gaman að fá þau inná fundinn og fá þeirra sýn á bæjarlífið. Það kemur ekki á óvart að aðstaða til tómstunda fyrir ungt fólk er þeim hugleikin og málefni framhaldsskólans. Bæjarráð fékk góða punkta frá þeim og nú er verkefnið að skoða þá betur og athuga hvort ekki sé hægt að koma til móts við þarfir þeirra!
Velti því svo fyrir mér eftir umræður í gærkvöldið hvort við þurfum ekki líka að virkja öldrunarráð þar sem málefni eldri hornfirðinga eru ekki alltaf nógu vel kynnt hjá okkur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2014 | 17:30
Vista!!
Var búin að skrifa hér langa færslu um verkefni dagsins en viti menn, lokaði síðunni vistaði ekki og PÚFF engin færsla þegar ég kom til baka!!
Segi því upplýsingafundur um flutning á málefnum fatlaðra, Matís og öryggismál :)
Er margs fróðari eftir daginn. Fundurinn var í Reykjavík en ég fylgdist með á Höfn þökk sé veraldarvefnum, heimsókn sunnanmanna á Höfn þökk sé innanlandsflugi og símtöl við embættismann sem fyrst var staddur á Akureyri og svo á skrifstofu í ráðuneyti í Reykjavík þökk sé GSM.
Takk fyrir að lesa og góða helgi :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2014 | 19:28
Heimsókn frá Eistlandi
Eyjólfur Guðmundsson skólameistari Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu kom með góða gest til mín í dag. Kersti Vana sem er fulltrúi framhaldsskóla í úthverfi Tallin í Eistlandi tilgangur heimsóknar Kersti er að kanna hug til samstarfs við FAS í verkefni tengdu kennslu í frumkvöðlafræði.
Ég sagði henni frá sveitarfélaginu og þau kynntu mér verkefnið sem er mjög spennandi og mjög í anda þess sem verið er að vinna í Vöruhúsinu.
Hef annars verið að fara yfir gögn um íbúafundinn sem haldinn var í Mánagarði 2011. Hef skoðað hvaða verkefni voru sett á oddinn og hvað hefur komið út úr því. En meira af því síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2014 | 19:37
122
Tólfti febrúar - góður dagur :)
Upplýsingagjöf og miðlun má segja að hafi verið þemu dagsins. Teymisfundur hjá fjármála- og stjórnsýsluteymi. Gott að fara yfir helstu mál sem eru í vinnslu og hvað er framundan hjá hverjum og einum í teyminu. Vinnsla á uppgjörum, gögn að verða tilbúin fyrir endurskoðendur. markviss vinna í gangi við að tryggja að enginn sé ómissandi, gott ef fleiri en einn geta gengið í þau störf sem þarf að inna af hendi. Fornleifaskráning og aukinn opnuartími á bókasafninu báru einnig á góma.
Umhverfisvefur að verða mótaður þannig að nú styttist í að hann verði tilbúinn í loftið. Sat símafund með upplýsinga- og gæðastjóra og framkvæmdastjóra ONE system þar sem við ræddum útfærslu á íbúagátt sem verður sett upp hjá sveitarfélaginu. Ferli uppsetningar og hvaða þáttum byrjum við á.
Rætt um skipulagsmál og ferðaþjónustu á öðrum tvem fundum og náði svo hluta af mjög fræðandi og flottum fyrirlestri í Nýheimum um viðhorf íslendinga til geðrænna vandamála. Hefði gjarnan viljað vera allan tíman en vildi alls ekki missa af fyrstu tónleikum dóttur minnar hjá Tónskóla Hornafjarðar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2014 | 19:39
112
Klukkan 11:30 í morgun fór brunabjallan í Ráðhúsinu í gang!! Þá var ekkert annað í boði en að standa upp skunda út af skrifstofunni, loka hurðinni á eftir sér og drífa sig út úr húsinu. Tók úlpuna mína, húfu og vettlinga á leið minni framhjá fatahenginu þar sem ég vissi að það var svalt í veðri og leiðinni heitið út.
Stóð svo úti á tröppunum með samstarfsfólkinu og vorum við auðvitað að bera okkur saman um hvort allir hefðu ekki örugglega lokað hurðum á eftir sér o.s.frv. En rýmingaræfingin gekk vel þó að allir hafi ekki gengið eins vel frá og 3ja hæðin!!
Síðan var ferðinni heitið út að Slökkvistöð þar sem Steinþór og Borgþór ásamt leikskólabörnum og starfsmönnum frá Krakkakoti tóku á móti okkur. Fengum fræðslu til að byrja með og æfðum okkur svo að slökkva eld með slökkvitæki og eldvarnateppi. Þetta er í annað sinn sem að ég tek þátt í svona æfingu og mæli hiklaust með því að allir fái svona æfingu því að ef maður þarf að slökkva eld undir pressu þá er mjög gott að hafa prófað!
Sama með skyndihjálpina - muna að drífa sig á námskeið, maður veit aldrei hvenær þörf er á snörum og öruggum handtökum sem geta bjargað lífi! Koma svo!
Takk fyrir mig Slökkvilið Hornafjarðar :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)