22.9.2016 | 08:18
Hver er þessi kona?
Ég er 47 ára gömul og starfa sem hjúkrunarstjóri á HSU Hornafirði, bæjarfulltrúi hjá Sveitarfélaginu Hornafirði, leiðbeinandi í skyndihjálp og yogakennari.
Gift Friðriki Jónasi Friðrikssyni rafvirkjameistara, á þrjú börn á aldrinum 10 til 27 ára og einn 3ja ára ömmustrák.
Ég hef setið í bæjarstjórn frá árinu 2010. Var bæjarstjóri frá nóvember 2013 fram yfir kosningar 2014. Þess fyrir utan hef ég gengt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, setið í bæjarráði, var formaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar er í skipulagsnefnd og almannavarnanefnd. Forseti bæjarstjórnar 2010 - 2013 og formaður bæjarráðs 2013.
Önnur trúnaðarstörf sem ég gegni; sit í ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, er fulltrúi Íslands í stjórn Vestnorræna lánasjóðsins og varamaður í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, ásamt því að sitja í miðstjórn Framsóknarflokksins og í stjórn sveitarstjórnarráðs flokksins. Var varamaður í SASS 2010-2014. Auk þessa hef ég starfað mikið með Hornafjarðardeild RKÍ m.a. í stjórn deildarinnar og formaður þar um nokkurra ára skeið er einnig félagi í Slysavarnardeildinni Framtíðinni.
Í störfum mínum við heilbrigðisþjónustu, sjálfboðaliðastörfum og sem sveitarstjórnarmaður hef ég öðlast mikla og góða reynslu sem ég tel að komi að góðum notum á Alþingi. Ég hef notið þess að vinna með fjölbreyttum hópi fólks að góðum verkum.
Ég hef mikinn áhuga á að taka þátt í að efla landið okkar enn frekar og halda áfram uppbyggingu grunnstoða samfélagsins á næsta kjörtímabili. Þar eru t.d. velferðarmál, heilbrigðisþjónusta, samgöngur og byggðamál mér ofarlega í huga.
- Huga að kjörum og búsetumálum ungs fólks, aldraðra og öryrkja.
- Efla heilbrigðisþjónustu út um landið og huga sérstaklega að þeim sem þurfa að sækja sér þjónustu um langann veg.
- Tryggja að allir íbúar landsins búi við aðgengi að heilbrigðisþjónustu þ.m.t. neyðarflutningum á Landspítalann allan ársins hring með því að opna neyðarbrautina á Reykjavíkurflugvelli.
- Fjölga þarf hjúkrunarrýmum út um allt land og tryggja að íbúar þeirra geti búið í einbýlum.
- Samgöngur - tryggja öryggi vegfarenda. Með aukningu ferðamanna þá hefur alvarlegum slysum fjölgað. Gera þarf átak í að útrýma einbreiðum brúm á þjóðvegum landsins og efla merkingar meðfarm þjóðveginum.
- Uppbygging ferðpamannastaða hefur gengið alltof hægt. Fjölga þarf áfangastöðum og bæta þá sem fyrir eru.
- Lokið verði við uppbyggingu á þriggja fasa rafmagni til dreifðari byggða. Með því verði atvinnuöryggi og byggðarþróun styrkt.
Hér hef ég stiklað á stóru og talið upp nokkur af mínum hjartans málum. Ég hlakka til að eiga samtal og samvinnu við ykkur um framtíðina og hvernig við viljum sjá Ísland fyrir komnadi kynslóðir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.