29.1.2014 | 18:08
Veraldarvefurinn og rafræn stjórnsýsla!
Í dag var sett í loftið facebook síða Sveitarfélagsins Hornafjarðar! Tilgangurinn með síðunni er að deila fréttum m.a. af vef sveitarfélagsins og gefa íbúum tækifæri á að koma með ábendingar og fyrirspurnir er varða sveitarfélagið.
Rafræn stjórnsýsla er eitt af því sem stefnt er að því að efla á árinu. Íbúagátt verður tekin í notkun og er verið að taka í gagnið kerfi sem hjálpar starfsmönnum að vinna með íbúatölur og ýmsar upplýsingar sem tengjast þeim.
Með íbúagáttinni mun íbúum gefast tækifæri á því að senda umsóknir og ýmis erindi rafrænt til sveitarfélagsins og getur íbúinn svo fylgst með ferli umsóknarinnar í gegnum kerfið og fær rafrænt svar við umsókn/erindi.
Að sjálfsögðu verður áfram hægt að mæta á staðinn og nota hefðbundin pappírsform kjósi menn að gera það eftir að kerfið verður tekið í notkun. Tilgangurinn er að gera þjónustuna aðgengilegri fyrir þá sem vilja nýta rafræna afgreiðslu og spara tíma og peninga.
Vefurinn er frábært fyrirbæri sem að getur gert okkur lífið léttara og einfaldað ýmislegt en hann er einnig vettvangur þar sem skelfilegir hlutir geta gerst. Ég hvet alla til að vera meðvitaðir um hvernig þeir nýta vefinn og muna í "commentum" athugasemdum á vefnum "Gullnu regluna" - Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra" Höfum það í huga :)
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.