21.1.2014 | 21:33
mánudagur og þriðjudagur!
Þéttir dagar og feiki nóg að gera! Hyllir í að skrifað verði undir samninga við Menntamálaráðuneytið varðandi framhaldsfræðslu og Þekkingarsetrið Nýheima skref fyrir skref nálgumst við það takmark.
Fengum kynningu á Motus og Pacta í dag. Motus sér um innheimtumál fyrir fjölmörg sveitarfélög og var að kynna þjónustu sína eins og þeir hafa gert áður. Alltaf spurning hvort að það sé einhver akkur fyrir sveitarfélagið að úthýsa verkefnum! Pacta er lögfræðistofa sem tengist Motus en hér á Hornafirði eru staðsettar tvær ágætar lögmannsstofur þannig að við erum vel sett þar.
Skipulagsmál líka til umræðu sem fyrr er að mörgu að hyggja þar. Tvö einstaklega skemmtileg símtöl sem geta gefið mér tækifæri til að láta ljós mitt skína skært!! Skyldi vera eitthvað grín í gangi?
Lauk vinnudeginum á fyrirlestri um mannauðsstjórnun, stefnumótun og starfsgreiningu!
Þá hófst fjölskyldudagurinn í samveru með börnum, tengdadóttur, ömmugullinu, mömmu og pabba :)
Athugasemdir
Gaman að fá innsýn inn í sveitastjórnarmál. Of margir vilja tengjast stórum aðilum þegar kemur að innheimtu. Þessi fyrirtæki með útlendu nöfnin eru eins og vélar, líklega í eigu banka. Sýna enga miskunn og gefa ekkert eftir. Öll innheimta er hluti af sölu eða álögum gjöldum. Miklu mannlegra að nota starfskrafta í byggðarlaginu og styrkja innviðina með gegnsæi.
Sigurður Antonsson, 22.1.2014 kl. 21:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.