5.12.2013 | 18:46
Nú er frost á fróni!
Já nú er frost á fróni og jólin nálgast með miklum hraða! Jólahátíðin í "Plássinu" tókust mjög vel á sunnudaginn 1. des sl. Allavega heyrir maður ánægjuraddir úr öllum áttum. Undirbúningashópurinn á kærar þakkir skildar fyrir þetta framtak! Næsta laugardag verður markaðurinn í Miðbæ, Nýheimum og þar á milli. Spennandi að sjá hvaða veður okkur verður boðið uppá þann dag!
Í dag var kynningarfundur um nýtt deiliskipulag í frístundabyggðinni í Stafafellsfjöllum kynnt í ráðhúsinu. Góð mæting var á fundinn og án efa komið fram góðar ábendingar.
Athugasemdir
Höfn á hiklaust að markaðsetja sig sem bæ jólasveinsins á Ísland og jafnvel alls heimsins.Verst að Finnarnir eru að reyna að stela honum.Vatnajökull er kjörinn staður fyrir jólasveininn og jafnvel þá alla.Hornafjarðarjólasveinninn er ágætur með Hornafjarðarmannanum, sem ýmsir vilja að vísu kalla öllu óvirðulegra nafni og Hornafjarðarmánanum, sem fólk sér ekki nema það komi til Hornafjarðar.
Sigurgeir Jónsson, 5.12.2013 kl. 23:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.