26.11.2013 | 21:06
26.11.2013
Fjölbreytt verkefni í dag. Fræddist um Zink á stálþil sem fyrirbyggjandi meðferð við ryði og eyðingu stálsins í höfnum. Mjög fræðandi og spennandi kostur.
Sat með Umhverfis- og skipulagsnefnd hluta af fundi þar sem rætt var um aðalskipulagið sem er í endurskoðun og verður brátt tilbúið til auglýsingar.
Bæjarráðsfundur sem halda átti í gær var fluttur til dagsins í dag vegna ráðstefnunnar sem var í gær. Byrjuðum fyrr en venjulega til að hitta forstöðumenn og fara yfir málefni þeirra málaflokks. Haldið var áfram umræðu um fjárhagsáætlun og var gjaldskrá Skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar til umræðu í dag og samþykkt án athugasemda enda ekki lagðar til hækkanir umfram vísitöluhækkanir sem áður hafa verið tengdar gjaldskrám og reiknast í byrjun hvers skólaárs. Einnig kom fram að ekki er þörf á hækkun fæðisgjalda í leik- og grunnskóla sem er mjög gott.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.