20.11.2013 | 17:09
Af banönum og hádegisveislu!!
Mér og öðrum starfsmönnum á HSSA var boðið í dýrindis hádegisverð í dag. Gamla góða lambalærið með öllu tilheyrandi. Tilefnið var að lokið er við framkvæmdir á deildinni þar sem skipt var um gólfdúk sem tilheyrandi raski.
Heimilisfólk og starfsfólk hefur sýnt fádæma þolinmæði á framkvæmdatímanum. Takk fyrir mig
En ég lenti í smá vandræðum í morgun. Hljóp út í Nettó til að ná mér í eitthvað til að maula í kaffitímanum. Minnug íbúafundsins frá því í gær var ég mjög umhverfismeðvituð í verslunarferðinni. Bananar, ekki framleiddir á Hornafirði og fluttir með mengandi skipi eða flugvél til landsins!!! En ég hugsaði með mér að fyrst þeir væru komnir þá væri nú ekki gott að láta þá skemmast í búðinni og tók þrjá!! Gott að eiga vara banana. Svo langaði mig í kex.... Allt sem mig langaði mest í var útlenskt en ekki kom það nú til greina. Fann íslenskt hafrakex og al íslenskan ost á kexið. En þegar betur var að gáð er kexið bæði í kassa og tvem plastpokum!! En látum það sleppa í þetta sinn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.