19.11.2013 | 19:18
Umhverfisdagur!!
Góður fundur á Smyrlabjörgum um fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins. Góðar samræður við þá sem sáu sér fært að mæta og gott veganesti fyrir okkur til áframhaldandi vinnu.
Fjarskiptamál, umhverfismál og skortur á húsnæði í dreifbýli og þéttbýli það sem stendur helst uppúr og við þurfum að vinna að áfram í samvinnu við heimamenn.
Mjög flottur íbúafundur um umhverfismál í samvinnu við Landvernd og Samband íslenskar sveitarfélaga í Nýheimum seinnipartinn. Góð mæting og urmull góðra hugmynda um hvernig við sem einstaklingar og sveitarfélagið getum dregið úr myndun gróðurhúsalofttegunda. Nú tekur við vinna við að vinna úr hugmyndunum sem komu fram og koma í framkvæmd.
Margt sem er í gangi og þarf aðeins að styrkja. Mikil vakning í gangi í umhverfisvitund hjá íbúum sveitarfélagsins sem er frábært.
Fengum góða heimsókn á fundinn frá RÚV, Gísli Einarsson fréttamaður var á staðnum með myndatökumann með sér. Þeir tóku upp efni á fundinum og áttu smá viðtal við mig um hitaveitu á Höfn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.