Atvinnumál og annað!

Langur bæjarráðsfundur í dag. Hluti af forstöðumönnum sveitarfélagsins áttu samtal við bæjarráð um málefni sinna stofnanna þarfir og stefnu.

Bæjarráð ræddi einnig þá þjónustuskerðingu sem stendur fyrir dyrum í sveitarfélaginu. Breytingar eru að verða hjá nokkrum fyrirtækjum sem verða til þess að þjónusta minnkar og  og störfum fækkar. Þetta er áhyggju efni. Einnig rædd staða mála hjá Matís. Stöðvarstjóri Matís á Hornafirði er að hætta störfum og er nú unnið að því að finna lausnir til að halda uppi þjónustu Matarsmiðjunnar og vonandi mun Matís sjá sér hag í því að ráða nýjann starfsmann til starfa hér á Höfn.

Opinn fundur um fjárhagsáætlun Sveitarfélagis á Smyrlabjörgum í hádeginu á morgun. Allir velkomnir súpa í boði :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband