6.11.2013 | 18:04
Skóla- og umhverfismál
Átti góðan fund í morgun með Ragnhildi Jónsdóttur fræðslustjóra þar sem við fórum yfir hennar málaflokk. Hvað er efst á baugi þar núna. Málaflokkurinn er stór leik- og grunnskólar, tómstundamálin og íþróttamál. Ræddum einnig fullorðins- eða kannski frekar framhaldsfræðslu. Málefni Nýheima o.fl. Mjög gott samtal og margt í gangi :)
Sveitarfélagið á núna flotta Umhverfisstefnu og þættir úr henni tvinnast að sjálfsögðu inní fjárhagsáætlunargerðina. Fór yfir það með formanni og varaformanni umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir fund nefndarinnar í dag.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.